Fara í efni

Aðalskipulag

Aðalskipulag er lögboðin skipulagsáætlun sem nær til eins sveitarfélags og er samþykkt af sveitarstjórn. Hlutverk aðalskipulags er að samræma og móta langtímastefnu í hinum ýmsu málaflokkum sveitarfélagsins og sýna stefnu sveitarstjórnar um þróun byggðar, landnotkun, landnýtingu, samgöngu- og þjónustukerfi og umhverfismál. Aðalskipulagið er fyrst og fremst stjórntæki sem notað er til þess að ná tilteknum markmiðum um þróun sveitarfélagsins.

Aðalskipulagi er ætlað að tryggja að framkvæmdir í sveitarfélaginu verði samkvæmt fyrirframgerðri áætlun sem allir hagsmunaaðilar hafa samþykkt fyrir sitt leyti. Aðalskipulagið er einnig upplýsingabrunnur fyrir íbúa sveitarfélagsins, starfsmenn, kjörna fulltrúa, hönnuði og framkvæmdaaðila.

Aðalskipulag er grunnurinn að gerð deiliskipulags fyrir einstök hverfi og byggingarsvæði. Í deiliskipulagi er gerð nákvæm grein fyrir notkun lands, nýtingarhlutfalli reita, húsagerð, tilhögun umferðarkerfis, lóða og byggingarreita.

Í skipulagsgreinargerð er getið um helstu forsendur skipulagsins, sett fram markmið um byggð, umhverfi, atvinnulíf, samgöngur og þjónustukerfi, skilgreindir landnotkunarreitir og sett ákvæði um þá. Aðalskipulagið afmarkar svigrúm til athafna og framkvæmda en setur einnig mörk um nýtingu, t.d. hvernig hagsmunaaðilar geta eða mega nýta sér það svigrúm sem skilgreint er.

Með því að smella hér má nálgast gildandi aðalskipulag Grímsnes- og Grafningshrepps.

Síðast uppfært 30. ágúst 2019
Getum við bætt efni síðunnar?