Atvinna í boði - Íþróttamiðstöðin Borg
17.03.2021
Atvinna í boði
Íþróttamiðstöðin Borg
Við leitum að þjónustulunduðu fólki í sumarstarf frá 1. júní til 22.ágúst.
(lágmarksaldur er 18 ára.)
STARFSSVIÐ OG VERKEFNI
- Gæsla við sundlaug, baðvörslu, afgreiðslu og eftirlit með íþróttahúsi og þreksal.
- Almenn þrif.
- Umsækjandi mun sækja námskeið í skyndihjálp og þarf að standast hæfnispróf sundstaða.
HÆFNISKRÖFUR
- Lágmarksaldur 18 ár.
- Hafi þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum.
- Dugnaður, stundvísi og samviskusemi.
- Þurfa að standast námskeið í skyndihjálp og sundpróf laugarvarða samkvæmt reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Hreint sakavottorð.
Umsóknum skal skila til forstöðumanns
Íþróttamiðstöðvarinnar Borg á netfangið rut@gogg.is.
Umsóknarfrestur er til 15.apríl 2021.
Nánari upplýsingar gefur
Rut Guðmundsdóttir í síma 899-8841.
.
Síðast uppfært 17. mars 2021
Getum við bætt efni síðunnar?