Hestamannafélagið Jökull
Hestamannafélagið Jökull var stofnað 1. júlí 2021.
Forsaga félagsins er sú að snemma árs 2020 fóru þrjú hestamannafélög að skoða kosti þess að sameinast undir einn hatt. Þetta voru Logi, Smári og Trausti. Mikil vinna fór af stað og var stofnuð sameiningarnefnd með tveimur aðilum úr hverju félagi.
Fyrir hönd Loga voru: Gústaf Loftsson og Kristín Sigríður Magnúsdóttir
Fyrir hönd Smára voru: Bragi Viðar Gunnarsson og Helgi Kjartansson
Fyrir hönd Trausta voru: Birgir Leó Ólafsson og Ragnheiður Bjarnadóttir
Nefndin notaði árið vel og safnaði gögnum frá öðrum félögum sem höfðu farið þessa leið. Lagt var fyrir gömlu stjórnirnar í lok árs 2020 að sameining félaganna yrði lögð fyrir á aðalfundum félaganna í janúar og febrúar. Var þetta samþykkt af öllum stjórnum.
Vegna covid 19 var ekki hægt að halda aðalfundi fyrr en í júní.
Aðalfundir gömlu félaganna voru haldnir 20. júní og kosið um framhaldið. Kosið var afgerandi með sameiningu á öllum þremur stöðum og því ljóst að stofna ætti nýtt félag.
Þann 1. júlí var nýja félagið stofnað á Geysi í Haukadal og tók þá starfsstjórn við keflinu.
Starfsstjórn skipuðu
Birgir Leó Ólafsson
Bragi Viðar Gunnarsson
Guðrún Svanhvít Magnúsdóttir
Ólafur Gunnarsson
Ragnheiður Eggertsdóttir
Ragnhildur Stefanía Eyþórsdóttir
Svavar Jón Bjarnason
Starfsstjórnin starfaði fram að fyrsta aðalfundi nýja félagsins. Félagið fékk vinnuheitið Hestamannafélag Uppsveitanna. Starfsstjórnin þurfti að semja lög félagsins, sækja um inngöngu í íþróttasamböndin og margt fleira.
Það var svo á aðalfundi 3. mars sem félagsmenn kusu nafn á félagið og fyrstu kjörnu stjórnina.
Nafnið Jökull var valið úr 7 nöfnum sem höfðu borist í hugmyndasamkeppni
Fyrstu stjórn Jökuls skipa
Formaður – Bragi Viðar Gunnarsson
Gjaldkeri – Ólafur Gunnarsson
Ritari – Svavar Jón Bjarnason
Meðstjórnandi – Ragnheiður Eggertsdóttir
Meðstjórnandi – Ragnhildur Stefanía Eyþórsdóttir
Meðstjórnandi – Vilborg Ástráðsdóttir
Meðstjórnandi – Vilborg Hrund Jónsdóttir