Bundið slitlag á heimreiðar lögbýla.
05.06.2020
Ábúendur á lögbýlum í Grímsnes- og Grafningshrepps geta sótt um að sveitarfélagið taki þátt í lagningu bundins slitlags á heimreiðar þeirra. Fyrirkomulagið er þannig að Vegagerðin greiðir kostnað við undirbyggingu vegarins og helming efra burðarlags, en Grímsnes- og Grafningshreppur ásamt ábúendum greiðir fyrir helming efra burðarlags og allan kostnað við klæðningu á veginn.
Ábúendur þurfa að skila inn umsóknum fyrir 1. september ár hvert vegna framkvæmda sem fyrirhugaðar eru árið eftir.
Hægt er að senda póst á netfangið gogg@gogg.is fyrir nánari upplýsingar.
Síðast uppfært 5. júní 2020
Getum við bætt efni síðunnar?