Fara í efni

Fyrsti fundur með nýjum sveitarstjóra

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps fundaði í fyrsta skipti í dag með nýjum sveitarstjóra, Iðu Marsibil Jónsdóttur.


Iða hefur nýtt tímann vel frá því hún hóf störf í lok júlí við að setja sig inn í starfið en það leggst vel í hana, enda mikið af spennandi verkefnum framundan.


Ýmis mál voru til afgreiðslu á fundinum, meðal annars var samþykkt að skipa í starfshóp um innleiðingu hringrásarhagkerfisins í sveitarfélaginu. Mun sá hópur hittast reglulega og skoða lausnir og móta stefnu varðandi losun úrgangs í samhengi við lagabreytingu í málaflokknum sem samþykkt var á Alþingi um mitt síðasta ár. Starfshópurinn er skipaður til eins árs. Grímsnes- og Grafningshreppur hefur verið framarlega hvað varðar flokkun úrgangs og ætlunin er að halda áfram að vera til fyrirmyndar á þeirri braut.

Síðast uppfært 17. ágúst 2022
Getum við bætt efni síðunnar?