Fara í efni

Fyrstu Styrkleikarnir á Íslandi

Við hvetjum alla til að taka þátt í fyrstu Styrkleikunum á Íslandi

Hvað eru Styrkleikarnir?
Styrkleikarnir er sólarhringsviðburður sem er táknrænt fyrir að það fæst engin hvíld frá krabbameini, fólk sem tekst á við krabbamein gerir það allan sólarhringinn. Viðburðurinn snýst um að styðja við, heiðra og minnast þeirra sem fengið hafa krabbamein. Styrkleikarnir eru hluti af alþjóðlega viðburðinum Relay for Life og eru 30 lönd sem halda viðburðinn í sinni heimabyggð.

Hvenær eru Styrkleikarnir?
Fyrstu Styrkleikarnir á Íslandi verða haldnir á íþróttasvæðinu á Selfossi frá hádegi 30.apríl til hádegis 1.maí árið 2022.

Hverjir geta tekið þátt?
Viðburðurinn er opinn öllum sem vilja sýna stuðning í verki. Fjölskyldur, fyrirtæki/starfsmannafélög, íþróttafélög, félagasamtök eða aðrir skrá sig sem lið og vinna saman að því að hafa fulltrúa á hreyfingu með boðhlaupskefli allan sólarhringinn. Þetta er ekki hlaup í eiginlegri merkingu heldur snýst þetta um samstöðu, samveru og samtakamátt liðanna í að styðja við, heiðra eða minnast einstaklinga sem hafa fengið krabbamein.

Verði úr að þið skráið lið mun liðsstjórinn fá frekari upplýsingar og hagnýt ráð fyrir sólarhringinn, skipulag hans og hvernig hægt er að halda utanum liðið sitt svo upplifunin verði sem innihaldsríkust.

Hér er hægt að skrá sig til leiks á Styrkleikana - Taktu þátt | Taka þátt | Krabbameinsfélagið

Styrkleikarnir eru haldnir af sjálfboðaliðum til að sýna stuðning, safna fé til rannsókna á krabbameinum og til þess að veita krabbameinsgreindum ráðgjöf og þjónustu.

Síðast uppfært 23. mars 2022
Getum við bætt efni síðunnar?