Grímsnes- og Grafningshreppur óskar eftir að ráða tæknimann
Grímsnes- og Grafningshreppur.
Óskar eftir að ráða starfsmann í fullt starf í umsjón aðveitna.
Grímsnes- og Grafningshreppur óskar eftir að ráða tæknimann til að sjá um hita- og vatnsveitur sveitarfélagsins. Um er að ræða undirbúning á viðhaldsverkefnum, nýtengingar, umsjón dæluhúsa og vöktunarkerfis þar við. Hafa eftirlit með framkvæmdum hitaveitna og vatnsveitna auk þess að fylgjast með daglegum rekstri. Viðkomandi þarf að hafa þekkingu á dælubúnaði og lögnum þar sem það verður helsta starfssvið starfsmanns, en önnur verkefni geta einnig fallið til. Þekking á landupplýsingakerfum og innmælingum er mikill kostur.
Starfssvið:
Verkefnastjórnun og verkeftirlit vegna nýframkvæmda og viðhaldsmála aðveitna.
- Gerð útboðsgagna/verðkannana fyrir minni verk
- Samskipti við opinbera aðila, hönnuði og verktaka
- Vinna við landupplýsinga grunn
- Vinna við GPS landmælingar
- Áætlanagerð og forgangsröðun verkefna
Menntunar- og hæfniskröfur:
Véliðnfræðingur, véltæknifræðingur eða vélaverkfræðingur eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af verkefnastjórnun
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
- Æskilegt að viðkomandi hafi þekkingu á vantsveitum og hitaveitum.
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skipulagshæfni
- Þekking og reynsla af notkun Windows-Office og CAD-hugbúnaði
Frekari fyrirspurnir má senda á gogg@gogg.is
Umsóknum skal fylgja ítarlegar starfsferilsskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsókn þarf að berast fyrir lok dags 15. september 2019 á netfangið gogg@gogg.is