Fara í efni

Inneignarkort fyrir Gámasvæðið Seyðishólum.

Þeir fasteignaeigendur sem þegar hafa sótt kortið sitt þurfa ekki að koma á skrifstofuna til þess að endurnýja inneignina á kortinu.
Inneignin er endurnýjuð rafrænt um áramót.

Allir fasteignaeigendur í Grímsnes- og Grafningshreppi sem greiða sorpeyðingargjöld fá afhent inneignarkort fyrir Gámastöðina í Seyðishólum. Inneignarkortin eru afhent á skrifstofu sveitarfélagsins á opnunartíma , mánudaga til fimmtudaga milli 9:00 og 15:00 og á föstudögum milli 9:00 og 12:00.
Kortið virkar þannig að þegar komið er á gámasvæðið er inneignarkortið skannað og starfsmaður á gámasvæðinu tekur út af kortinu í samræmi við það magn af gjaldskyldum úrgangi sem verið er að losa sig við. Undir gjaldskyldan úrgang flokkast timbur, málað timbur og grófur úrgangur. Inneignarkortið inniheldur ákveðið magn punkta en hver punktur er 0,25 rúmmetrar. Starfsmaður á gámasvæði metur magn gjaldskylds úrgangs en miðað er við að 0,25 rúmmetrar sé ígildi eins svarts ruslapoka. Þegar inneignin klárast þá er innheimt samkvæmt gjaldskrá en gjald pr. rúmmetra er kr. 6.000,-. Glatist inneignarkort getur fasteignaeigandi nálgast nýtt kort á skrifstofu sveitarfélagsins gegn gjaldi kr. 5.000,-.

Eigendur fasteigna þurfa að kvitta fyrir móttöku korts og fylgir kortið fasteigninni

Við heimsókn á gámastöðina skal úrgangurinn vera flokkaður, ef ekki er flokkað og erfitt að sjá hverju er verið að henda t.d. ef rusl er í svörtum ruslapokum, þá verður tekið af inneignarkortinu fyrir öllum úrganginum.

Síðast uppfært 22. apríl 2022
Getum við bætt efni síðunnar?