Fara í efni

Kerhólsskóli óskar eftir að ráða kennara í leikskóladeild

Kerhólsskóli er sameinaður leik- og grunnskóli með u.þ.b. 70 nemendur á aldrinum 1. árs upp í 10. bekk þar af eru 18 börn í leikskóladeild. Skólinn er Grænfánaskóli og leggur áherslur á fagleg vinnubrögð, einstaklingsmiðað nám, umhverfismennt, útikennslu og heilsueflingu. Leikskóladeildin vinnur auk þess út frá kenningum um „Flæði“.

Kerhólsskóli er í u.þ.b. 15. mín akstursfjarlægð frá Selfossi.

Vakin er athygli á stefnu Grímsnes- og Grafningshrepps um jafnan hlut kynja í störfum hjá sveitarfélaginu.

Kennari í 100% starf. Kennarar í leikskóladeild starfa eftir starfslýsingu leikskólakennara.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til kennslu í leikskóla
  • Góð færni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta
  • Vilji til að gera góðan skóla betri

Fáist ekki kennari er möguleiki að ráða leiðbeinanda tímabundið.

Umsækjendur þurfa að sýna fram á hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur 30. nóvember 2023

Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf strax eftir áramót.

Nánari upplýsingar gefur Sigríður Þorbjörnsdóttir deildarstjóri leikskóla/staðgengill skólastjóra í síma 480-5520, 867-5175.
Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila berist til deildarstjóra/staðgengil skólastjóra sigga@kerholsskoli.is

Síðast uppfært 1. desember 2023
Getum við bætt efni síðunnar?