Fara í efni

Kerhólsskóli óskar eftir að ráða kennara í leikskóladeild og stuðningsfulltrúa í grunnskóladeild.

Kerhólsskóli óskar eftir að ráða kennara í leikskóladeild og stuðningsfulltrúa í grunnskóladeild.

Kerhólsskóli er sameinaður leik- og grunnskóli með u.þ.b. 70 nemendur á aldrinum 1. árs upp í 10. bekk þar af eru 16 börn í leikskóladeild. Skólinn er Grænfánaskóli og leggur áherslur á fagleg vinnubrögð, einstaklingsmiðað nám, umhverfismennt, útikennslu og heilsueflingu.

Vakin er athygli á stefnu Grímsnes- og Grafningshrepps um jafnan hlut kynja í störfum hjá sveitarfélaginu.

Kennari í 100% starf. Kennarar í leikskóladeild starfa eftir starfslýsingu leikskólakennara.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til kennslu í leikskóla
  • Góð færni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta
  • Vilji til að gera góðan skóla betri

Fáist ekki kennari er möguleiki að ráða leiðbeinanda tímabundið.

Stuðningsfulltrúi á yngsta stigi í 75% stöðu. Stuðningsfulltrúi aðstoðar kennara inni í bekk.

  • Góð færni í samskiptum
  • Jákvæðni og sveigjanleiki
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta
  • Vilji til að gera góðan skóla betri

Umsækjendur þurfa að sýna fram á hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur 14. október 2022

Æskilegt að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar gefur Jóna Björg Jónsdóttir skólastjóri í síma 480-5520, 863-0463.
Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila berist til skólastjóra, jonabjorg@kerholsskoli.is

Síðast uppfært 4. október 2022
Getum við bætt efni síðunnar?