Kerhólsskóli óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa
Kerhólsskóli er sameinaður leik- og grunnskóli með um 80 nemendur á aldrinum 1. árs upp í 10. bekk. Skólinn er Grænfánaskóli og leggur áherslur á fagleg vinnubrögð, einstaklingsmiðað nám, umhverfismennt og útikennslu, list- og verkgreinar. Vakin er athygli á stefnu Grímsnes- og Grafningshrepps um jafnan hlut kynja í störfum hjá sveitarfélaginu. Allir starfsmenn skólans sem eru í 100% vinnu fá tvær hreyfistundir á viku í vinnutíma.
Um er að ræða 50 -100% stöður sem getur skiptist í að vera stuðningsfulltrúi
ca. 50 - 70% og leiðbeinandi í frístund ca. 30%.
- Stuðningsfulltrúi starfar í nánu samstarfi við umsjónarkennara og sérkennara.
- Leiðbeinandi í frístund vinnur eftir leiðsögn yfirmanns frístundar.
Vænst er af umsækjendum:
- Góðrar færni í samskiptum
- Frumkvæði í starfi, faglegs metnaðar og ábyrgðar
- Sjálfstæði og skipulagðra vinnubragða
- Sveigjanleika og góðrar færni í samskiptum.
- Góðrar íslenskukunnáttu
- Framtakssemi og jákvæðni.
- Vilja til að gera góðan skóla betri.
Æskilegt að að umsækjandi geti byrjað sem fyrst
Umsækjendur þurfa að sýna fram á hreint sakavottorð
Umsóknarfrestur er til 30. janúar 2020
Nánari upplýsingar gefur Jóna Björg Jónsdóttir skólastjóri í síma 480-5520, 863-0463. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðilum berist til skólastjóra jonabjorg@kerholsskoli.is