Kerhólsskóli óskar eftir að ráða Stuðningsfulltrúa / leiðbeinanda í frístund.
Kerhólsskóli óskar eftir að ráða
Stuðningsfulltrúa / leiðbeinanda í frístund.
Kerhólsskóli er sameinaður leik- og grunnskóli með um 80 nemendur á aldrinum 1. árs upp í 10. bekk. Skólinn er Grænfánaskóli og leggur áherslur á fagleg vinnubrögð, einstaklingsmiðað nám, umhverfismennt og útikennslu, list- og verkgreinar. Vakin er athygli á stefnu Grímsnes- og Grafningshrepps um jafnan hlut kynja í störfum hjá sveitarfélaginu. Allir starfsmenn skólans sem eru í 100% vinnu fá tvær hreyfistundir á viku í vinnutíma.
Um er að ræða 100% stöðu sem skiptist í að vera stuðningsfulltrúi
ca. 60 - 70% og leiðbeinandi í frístund ca. 30%-40%.
- Stuðningsfulltrúi starfar í nánu samstarfi við umsjónarkennara og sérkennara.
- Leiðbeinandi í frístund vinnur eftir leiðsögn yfirmanns frístundar.
Vænst er af umsækjendum:
- Góðrar færni í samskiptum
- Frumkvæði í starfi, faglegs metnaðar og ábyrgðar
- Sjálfstæði og skipulagðra vinnubragða
- Sveigjanleika og góðrar færni í samskiptum.
- Góðrar íslenskukunnáttu
- Framtakssemi og jákvæðni.
- Vilja til að gera góðan skóla betri.
Umsækjendur þurfa að sýna fram á hreint sakavottorð
Umsóknarfrestur er til 31. júlí 2020
Nánari upplýsingar gefur Jóna Björg Jónsdóttir skólastjóri í síma 480-5520, 863-0463 eða Íris Anna Steinarrsdóttir í síma 695-7110.
Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðilum berist til skólastjóra jonabjorg@kerholsskoli.is