Kerhólsskóli óskar eftir að ráða Stuðningsfulltrúa / leiðbeinanda í frístund.
Kerhólsskóli er sameinaður leik- og grunnskóli með um 80 nemendur á aldrinum 1. árs upp í 10. bekk.
Skólinn er Grænfánaskóli og leggur áherslur á fagleg vinnubrögð, einstaklingsmiðað nám, umhverfismennt og útikennslu, list- og verkgreinar.
Vakin er athygli á stefnu Grímsnes- og Grafningshrepps um jafnan hlut kynja í störfum hjá sveitarfélaginu.
Allir starfsmenn skólans sem eru í 100% vinnu fá tvær hreyfistundir á viku í vinnutíma.
Um er að ræða 100% stöðu sem skiptist í að vera stuðningsfulltrúi
ca. 75% og leiðbeinandi í frístund ca. 25%.
Stuðningsfulltrúi starfar í nánu samstarfi við umsjónarkennara og sérkennara.
Leiðbeinandi í frístund vinnur eftir leiðsögn yfirmanns frístundar.
Vænst er af umsækjendum:
Góðrar færni í samskiptum
Frumkvæði í starfi, faglegs metnaðar og ábyrgðar
Sjálfstæði og skipulagðra vinnubragða
Sveigjanleika og góðrar færni í samskiptum.
Góðrar íslenskukunnáttu
Framtakssemi og jákvæðni.
Vilja til að gera góðan skóla betri.
Umsækjendur þurfa að sýna fram á hreint sakavottorð
Umsóknarfrestur er til 10. september 2020
Nánari upplýsingar gefur Jóna Björg Jónsdóttir skólastjóri í síma 480-5520, 863-0463 eða
Íris Anna Steinarrsdóttir í síma 695-7110. Umsóknir með upplýsingum um menntun,
starfsreynslu og umsagnaraðilum berist til skólastjóra jonabjorg@kerholsskoli.is