Fara í efni

Kveðja frá sveitarstjóra

Kæru sveitungar
Mikið hefur gengið á í samfélaginu okkar undanfarnar vikur og hefur það vafalaust haft áhrif á okkur öll, á einn eða annan hátt. Því miður er það svo að við megum búast við því að næstu daga og vikur muni einkennast áfram af ákveðinni óvissu og þar með óöryggi.
Ég vil því hvetja ykkur öll til að taka tilmælum almannavarna og sóttvarnalæknis alvarlega og huga að þeim sem standa okkur nærri, ættingjum, vinum og nágrönnum.
Það eru ef til vill ekki allir í þeirri stöðu að hafa einhverja í kringum sig til að aðstoða sig eða tala við. Því vil ég biðja þá sem einhverja aðstoð þurfa eða einhvers vilja spyrja, að setja sig í samband við skrifstofu sveitarfélagsins, annað hvort í síma: 480-5500 eða með tölvupósti á netfangið gogg@gogg.is þar sem fundin verður leið til að aðstoða fólk.
Einnig vil ég benda á að hægt er að hafa samband við Hjálparsíma Rauða Krossins í síma 1717.
Öll starfsemi sveitarfélagsins hefur á undanförnum dögum riðlast til á einn eða annan hátt. Inn á heimasíðu sveitarfélagsins www.gogg.is er hægt að nálgast nánari upplýsingar um starfsemi sveitarfélagsins. Stjórnendur halda reglulega fjarfundi um stöðu mála en aðstæður geta breyst með stuttum fyrirvara og hvet ég ykkur til að fylgjast grannt með heimasíðunni og facebook síðu sveitarfélagsins.
Ég vil nýta tækifærið og þakka stjórnendum og öðru starfsfólki fyrir gott starf og ykkur kæru sveitungar fyrir skilning á breyttu fyrirkomulagi á starfsemi hinna ýmissa stofnanna innan sveitarfélagsins.
Munum að hver dagur sem líður, færir okkur nær endanum á þessu tímabundna ástandi.
Ingibjörg Harðardóttir, sveitarstjóri

 

Síðast uppfært 3. apríl 2020
Getum við bætt efni síðunnar?