Fara í efni

Losun rotþróa

Að gefnu tilefni er hér komið á framfæri orðsendingu frá þjónustufulltrúa seyruverkefnisins.

Seyruverkefnið sinnir ekki hreinsun á rotþróm á veturna, störf hefjast að vori um leið og hægt er að fara með seyru til dreifingar á uppgræðslusvæðið okkar og starfað eins langt fram eftir hausti og hægt er vegna veðurs og færðar.

Þeim sem þurfa á þjónustu að halda, þann tíma sem seyruverkefnið getur ekki sinnt hreinsunum er bent á að hafa samband við Hreinsitækni https://hrt.is/ .

Gott samstarf er við Hreinsitækni sem þekkir okkar svæði vel.

Hreinsitækni innheimtir sjálft, samkvæmt sinni gjaldskrá fyrir veitta þjónustu, seyruverkefnið kemur ekki að þeirri innheimtu.

Síðast uppfært 27. febrúar 2023
Getum við bætt efni síðunnar?