Fara í efni

Malbikun á Biskupstungnabraut - LOKUN

Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir:
Fimmtudaginn 4. nóvember og föstudaginn 5. nóvember er stefnt á að malbika Biskupstungnabraut. Veginum verður alveg lokað á milli Þingvallavegar og Miðengisvegar. Hjáleið verður um Búrfellsveg. Viðeigandi merkingar verða settar upp skv. viðhengdu lokunarplani 8.0.82.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 07:00 til kl. 22:00 á fimmtudaginn og frá kl. 07:00 til kl. 20:00 á föstudaginn.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

 

Síðast uppfært 4. nóvember 2021
Getum við bætt efni síðunnar?