Nýtt deiliskipulag – Borgarteigur
Sveitarstjórn hefur samþykkt að senda til skipulagsnefndar nýtt deiliskipulag fyrir íbúðar- og landbúnaðarlóðir á hluta af golfvelli í landi Minni-Borg. Mikil eftirspurn er eftir lóðum í sveitarfélaginu og öllum skipulögðum lóðum hefur verið úthlutað.
Á nýja skipulagssvæðinu sem hefur fengið nafnið Borgarteigur verða 12 íbúðalóðir og hesthúsahverfi. Það svæði sem eftir er verður áfram skipulagt sem útivistar- og afþreyingarsvæði.
Markmið með deiliskipulagi landbúnaðarlands við Minni-Borg er að stuðla að fjölbreyttu byggðamynstri þar sem íbúum er gefinn valkostur um búsetuhætti og að geta búið í nálægð við náttúru og dýralíf. Með gerð skipulagsins er stutt við megin stefnu sveitarstjórnar um að skapa góð skilyrði fyrir mannlíf og atvinnu til framtíðar og gera búsetu á svæðinu eftirsóknarverða.
Það land sem deiliskipulagið nær til er um 27 hektarar og er skilgreint sem landbúnaðarsvæði (L3) í nýju aðalskipulagi. Samkvæmt aðalskipulagi eru þetta svæði með rúmum byggingarheimildum þar sem heimilt er að byggja litlar landspildur til fastrar búsetu, heimilt er að vera með landbúnaðarstarfsemi og minniháttar atvinnustarfsemi sem er jafnvel ótengd landbúnaði og hæfir stærð hverrar lóðar. Íbúðarlóðir eru á stærðarbilinu 1-1,4 hektarar.
Einnig verða í boði sjö hesthúsalóðir á svæðinu ásamt möguleika á lóð fyrir reiðhöll og reiðvöll.
Verkefnahópur hefur fundað með Vegagerðinni um undirgöng undir Biskupstungnabraut þannig að góð og örugg tenging myndist fyrir gangandi, hjólandi og ríðandi frá Sólheimavegi á Borg. Vegagerðin hefur tekið jákvætt í það verkefni og skýrist það bráðlega hvenær sú framkvæmd kemst á áætlun.
Áætlað er að vinna við vegtengingar og lagnir á svæðinu hefjist á næsta ári.