Skemmtileg vinna - hentug fyrir skólafólk!
17.10.2023
Okkur vantar ábyrga einstaklinga til þess að vera liðveitendur.
Hvað gera liðveitendur:
Félagsleg liðveisla er fyrir einstaklinga með fötlun sem þurfa persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun, t.d. aðstoð til að njóta menningar og félagslífs.
Umsækjendur þurfa að vera 18 ára eða eldri, ábyrgir og jákvæðir. Hafa áhuga á að vinna með börnum eða einstaklingum með fötlun.
Þurfa að hafa bílpróf og aðgang að bíl
Frekari upplýsinga veitir Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, ráðgjafarþroskaþjálfi í síma 480-1180 eða á netfangið gudbjorg@arnesthing.is
Umsóknir berast á sama aðila.
Síðast uppfært 17. október 2023
Getum við bætt efni síðunnar?