ÚTBOÐ Grímsnes- og Grafningshreppur óskar eftir tilboðum í verkið: Borg stígar 2020
Grímsnes- og Grafningshreppur óskar eftir tilboðum í verkið:
Borg stígar 2020
Verkið felur í sér malbikun, gerð burðarlags og jarðvegsskipti þar sem það á við á stígum og bílastæði við Borg. Verkið felur einnig í sér gerð hraðahindrana og gangbrauta og uppsetningu umferðarmerkja.
Helstu magntölur eru:
Gröftur |
350 m³ |
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með þriðjudeginum 3. júní 2020. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Kristján Friðgeirsson hjá Eflu Suðurlandi í síma 665 6310 eða með tölvupósti á netfangið kiddi@efla.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Eflu Verkfræðistofu Austurvegi 3-5, 800 Selfoss, fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 16. júní 2020, en þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Grímsnes- og Grafningshreppur