Fríska Sólheimahlaupið
Laugardaginn 24. september næstkomandi verður haldið hið árlega Fríska Sólheimahlaup. Þá fara hlauparar úr hlaupahópnum Frískum Flóamönnum í heimsókn á Sólheima og bjóða Sólheimabúum og öllum áhugasömum, í hreyfingu frá Borg í Grímsnesi að Sólheimum. Öllum er frjálst að taka þátt með því að hlaupa, labba eða hjóla.
Kl. 9:30 er mæting við Ægisbúð, sameinast í bíla og ekið að Borg í Grímsnesi. Kl. 10:00 verður lagt af stað frá Borg og hlaupið, hjólað og gengið að Sólheimum, um 9 km leið. Þeir sem hjóla geta að sjálfsögðu hjólað báðar leiðir og þeir sem vilja fara styttri vegalengd geta fengið far hluta leiðarinnar.
Að loknu hlaupi, i, kl. 10.40, verður athöfn í Grænu könnunni þar sem Frískir Flóamenn munu afhenda framfarabikarinn sem þeir gáfu Sólheimum. Hann hlýtur sá Sólheimaíbúi sem hefur sýnt framfarir, góða ástundun í íþróttum eða almennri hreyfingu og hefur verið hvetjandi og öðrum góð fyrirmynd.
Allir velkomnir.
Fyrirvari: ef veðurspá er slæm verður hlaupið sunnudaginn 25. september.