Fara í efni

Appelsínugul viðvörun - skólahald

Veðurspá er afar slæm fyrir daginn í dag miðvikudag,  gert ráð fyrir að taki að hvessa verulega um hádegisbil með mikilli úrkomu og hiti verði um og rétt yfir frostmarki.
Af þessum sökum hefur verið ákveðið að skólahald í leik- og grunnskólum Grímsnes- og Grafningshrepps verði fellt niður frá kl. 11.45 og skólabílar haldi þá heim. Foreldrar fá tölvupóst frá leik- og grunnskólum.
Skrifstofa Grímsnes- og Grafningshrepps verður einnig lokuð frá hádegi á miðvikudag.

Veðurspá fyrir fimmtudaginn er einnig afar slæm og eru foreldrar hvattir til að fylgjast með tilkynningum frá skólunum.

Síðast uppfært 5. febrúar 2025
Getum við bætt efni þessarar síðu?