Fara í efni

Laus staða Náms- og starfsráðgjafa á starfssvæði Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings

Staða náms- og starfsráðgjafa fyrir grunnskóla á starfssvæði Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings er laus til umsóknar. Hjá Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings starfar öflug liðsheild sérfræðinga sem vinnur í þverfaglegu samstarfi þar sem áhersla er lögð á samvinnu, snemmtæka íhlutun og farsæld í þágu barna.

Um er að ræða 100% stöðu sem skiptist milli 6 grunnskóla. Leitað er eftir metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn að taka þátt í þverfaglegu samstarfi, er tilbúinn að starfa í fleiri en einum grunnskóla og þróa og laga starfið að þeim aðstæðum. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2023 eða eftir samkomulagi.

Starfssvið

Náms- og starfsráðgjafi sinnir fjölbreyttu starfi í samvinnu við skólaþjónustu, skólastjórnendur og annað starfsfólk skólanna. Meðal verkefna er að skipuleggja náms- og starfsfræðslu, veita upplýsingar um nám og störf, leiðbeina nemendum um vinnubrögð í námi, veita nemendum persónulega ráðgjöf, sinna forvarnarstarfi, vinna í eineltismálum, veita foreldrum ráðgjöf, undirbúa flutning nemenda milli skólastiga o.fl.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun í náms- og starfsráðgjöf með tilheyrandi starfsréttindum
  • Reynsla af náms- og starfsráðgjöf í grunnskóla er kostur
  • Þekking og reynsla af ráðgjöf og stuðning við nemendur með fjölbreyttar þarfir
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, sveigjanleiki og samstarfsvilji
  • Þekking og reynsla af forvarnarstarfi
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti

Umsóknir sendist rafrænt á netfangið gunnlaug@arnesthing.is. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands Íslenskra sveitarfélaga og FG. Umsóknarfrestur er til 10. júlí n.k.

Nánari upplýsingar veitir Gunnlaug Hartmannsdóttir deildarstjóri skólaþjónustu í síma 4801180.

Síðast uppfært 22. júní 2023
Getum við bætt efni síðunnar?