Fara í efni

Lína Björg ráðin sem byggðaþróunarfulltrúi

Lína Björg Tryggvadóttir hefur verið ráðin byggðaþróunarfulltrúi fyrir sveitarfélögin fjögur í Uppsveitum Árnessýslu, Hrunamannahrepp, Skeiða- og Gnúpverjahrepp, Grímsnes- og Grafningshrepp og Bláskógabyggð og mun hún hefja störf í byrjun september.

Lína Björg er viðskiptafræðingur og er að ljúka mastersnámi í sjávarbyggðafræðum, þverfræðilegu meistaranámi þar sem fengist er við þróun byggða í fortíð og framtíð, auk diplómu í opinberri stjórnsýslu. Lína Björg var verkefnastjóri í byggðaþróunardeild Vestfjarðastofu í átta ár og áður útibússtjóri Motus/Intrum á Vestfjörðum.

Byggðaþróunarfulltrúi veitir ráðgjöf og handleiðlu á sviði atvinnu- og byggðaþróunar, vinnur að upplýsingaöflun, miðlun upplýsinga og svæðisbundnum verkefnum á sviði byggðaþróunar, auk þess kemur hann að ferðatengdum málum og fjölmenningu. Byggðaþróunarfulltrúi sinnir verkefnum í samráði við sveitarfélögin fjögur og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS).

Síðast uppfært 28. ágúst 2023
Getum við bætt efni síðunnar?