Bólusetning gegn inflúensunni
20.10.2021
Bólusetning gegn inflúensunni hefst mánudaginn 25. október á Heilsugæslunni í Laugarási.
Athugið að Sóttvarnarlæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar.
Frá 25. október til 8. nóvember geta því einungis eftirfarandi áhættuhópar pantað tíma í flensusprautu:
- Allir einstaklingar 60 ára og eldri
- Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-,nýrna-, og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
- Barnshafandi konur
- Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
Frá og með 15. nóvember geta aðrir pantað tíma í flensusprautu
Athugið að æskilegt er að það líði a.m.k. tvær vikur milli inflúensubólusetningar og COVID 19 bólusetningar
Síðast uppfært 22. október 2021
Getum við bætt efni síðunnar?