Fara í efni

Meðal guða og manna: Íslenskir listamenn í Varanasi

Meðal guða og manna: Íslenskir listamenn í Varanasi
Einar Falur Ingólfsson, Eygló Harðardóttir, Guðjón Ketilsson, Margrét H. Blöndal, Sigurður Árni Sigurðsson, Sólveig Aðalsteinsdóttir
Sýningarstjóri: Pari Stave
8. febrúar - 24. ágúst 2025
Tími og rými að starfa í eru tveir grundvallarþættir skapandi vinnu. Fyrir listamenn sem beita sjónrænum miðlum er vinnustofan griðastaður, persónulegur vettvangur fyrir djúpa íhugun og ástundun. Þessi sýning er afrakstur verkefnis sem hverfist um spurninguna: Hvað gerist þegar listamenn starfa um hríð í vinnustofu víðs fjarri öryggi hins vanabundna hversdagslífs?
Á sýningunni Meðal guða og manna gefst innsýn í reynslu sex mótaðra og margreyndra íslenskra listamanna en verkin sem eru sýnd urðu til í tengslum við dvöl þeirra nýverið í gestavinnustofum Kriti Gallery og Anandvan Residency í Varanasi á Indlandi. Samtengdar vinnustofurnar eru á afgirtu svæði, umluktar gróskumiklum garði; þar eru rúmgóðar vinnustofur með svefnaðstöðu fyrir listamennina og sameiginlegt eldhús og borðstofa – sannkallaður griðastaður í sögufrægri borg með einhverja lengstu samfelldu búsetu manna. Vinnustofurnar eru í senn staður að starfa á og grunnbúðir fyrir leiðangra inn í marglaga heima Varanasi (sem einnig er þekkt sem Banaras), andlega miðstöð sem meðal hindúa er þekkt sem „bústaður guðanna“, með ótölulegum fjölda hofa og altara sem helguð eru ákafri tilbeiðslu. Varanasi er borg öfga og fjölskrúðgs mannlífs en jafnframt alvörugefinnar sorgar við líkbrennslurnar á tröppunum við hið helga Gangesfljót.
Ljósmyndarinn og rithöfundurinn Einar Falur Ingólfsson ferðaðist árið 1999 fyrstur listamannanna sex til Varanasi. Indverski ljósmyndarinn Dayanita Singh, kunningi hans, kynnti hann síðar fyrir hjónunum Navneet Raman og Petra Manefeld (sem eru höfðinglegir gestgjafarnir í Kriti Gallery og Anandvan Residency sem til var stofnað árið 2007), og Ajay Pandey, fræðimanninum fróða sem leiðir ásamt Raman listamennina sem starfa í vinnustofunum um borgina og veita þeir ríkulega innsýn í sögu hennar og menningu. Eftir að hafa dvalið og starfað nokkrum sinnum í vinnustofunum fékk Einar Falur þá hugmynd að fá nokkra reynda listamenn landa sína með sér til Varanasi, forvitinn að sjá hvernig verk kynnu að vera afrakstur dvalar þeirra í borginni helgu.
Vandfundin eru ólíkari lönd og menningarheimar en Ísland og Indland. Annarsvegar er Ísland, staðsett norður undir heimskautsbaug, fámennt, einangrað landfræði- og sögulega, og þjóðin sem byggir eyna er tiltölulega einsleit menningarlega. Indland, hinsvegar, er við mörk hitabeltisins, afar þéttbýlt, fornt, og byggir menningarlega á fjölda laga margbrotinnar sögu á vegamótum menningarlega ólíkra heima.
Íslensku listamennirnir sem héldu til Varanasi fetuðu í fótspor fjölmargra annarra listamanna sem hafa farið þangað í leit að áhrifum og upplifunum. Samt var tilgangurinn ekki að myndskreyta eða túlka það sem þau rákust á; þess í stað var ætlunin að leyfa því áreiti á skynfærin, sem óneitanlega á sér stað í ferð til Indlands, flæða um taugakerfið og heilann, og sjá hvaða áhrif það myndi hafa á sköpunarverk þeirra.
Sólveig Aðalsteinsdóttir
Þegar Sólveig hélt í fyrsta skipti til Indlands árið 2023, þá hafði hún þegar unnið að teikningum þar sem hún kannaði tjáningarríka möguleika einfaldra „kalligrafískra“ lína. Drjúgan hluta þess tíma þegar hún dvaldi í Kriti, kannaði Sólveig rangala hinnar fornu borgar og fylgdist af athygli með flæði hversdagslífsins; einnig skoðaði hún línulegt flæði hins mikla helga Gangesfljóts og bylgjulaga útlínur hinna helgu Gangatiri kúa, sem hún skissaði líka meðan á dvölinni stóð. Þegar Sólveig síðan snéri heim til Reykjavíkur kaus hún gróftrefjaðan hamp-pappír og India-blek til að skapa stóra teikningu sína í átta hlutum. Hún sótti námskeið í kínverskri kalligrafíu og þjálfaði sig í þeirri tækni, þar sem þykkum pensli er beitt við að móta breiðar, flæðandi línur. Saman mynda teikningarnar einskonar línu sjóndeildarhrings sem teygist milli arkanna. Seinna fór hún svo að hugleiða hvernig uppruni Gangesfljóts í jöklum Himalayafjalla kallaðist, á vissan hátt, á við íslensku jökulárnar. Í áhuga hennar á kúnum, sem eru sínálægar á Indlandi, var síðan önnur tenging; milli helginnar sem er á kúnum í trú hindúanna og svo kýrinnar Auðhumlu í norrænni goðafræði, en hún er nærandi uppspretta sköpunarverksins sem greint er frá í Snorra-Eddu. Auðhumla er heiti teikningaraðar Sólveigar. Skúlptúrarnir sem hún kallar Betula (Birki) eru í einskonar kontrapunkti við tvívíðar láréttar línuteikningarnar. Þeir eru mótaðir úr útskornum birkigreinum, festir á viðarsökkla, og viðkvæmnisleg form greinanna rísa lóðrétt upp eins og grannar reykjarsúlur.
Margrét H. Blöndal
Margrét ferðaðist í fyrsta skipti til Indlands í október 2024. Varanasi framkallaði fyrir henni hugmyndir um erkitýpur, ævafornar ímyndir, manngerðir eða aðstæður sem birtast okkur endurtekið á ólíkum stöðum og tímum. Í Varanasi fann hún fyrir eigin fortíð sem speglaðist í því sem hún sá í kringum sig. „Þetta var djúpsálarlegt ferðalag, ég ferðaðist í senn um hið innra og ytra. Óumræðanlega magnað og fagurt en hvorki auðvelt né auðmeltanlegt. Litróf lífsins afhjúpast fyrir augum þér berskjaldað, tært, hrátt og ómengað – sjálfu sér samkvæmt og um það virðist ríkja einhvers konar sátt.“ Málverkin á sýningunni voru unnin þennan mánuð sem Margrét dvaldi í vinnustofunni. Þegar hún málaði nýtti hún sér ljósmyndir sem hún hafði tekið sem kveikjur til að endurtengjast upplifuninni. „Verkin eru gerð meðan marglaga kenndir og umhverfisáhrif sóttu að, ýmist stakar eða ótal í einu; ákefð, hiti, viðkvæmni, helgi, áreiti, raki, fegurð, þröng, næring og bílflauturnar sem aldrei þögnuðu.“
Margrét tók með sér vatnsuppleysanlega olíuliti en átti í vandræðum með að tengjast þeim á sama tíma og hreyfanleika hennar voru skorður settar í framandi aðstæðum. Hún stífnaði því öll en fékk verkjastillandi ayurveda olíu til að bera á sig. Hún prófaði að blanda olíunni við litina og bera þá á pappírinn þar sem hún vann á gólfinu og þá ... „vissi ég jafn vel og hægt er að vita að þarna var komið lykilefnið sem ekki eingöngu liðkaði mig heldur veitti mér einnig aðgang að litunum sem ég var að nota í fyrsta skipti.“
Eygló Harðardóttir
Eygló dvaldi fyrst í vinnustofu Kriti Gallery árið 2020 og hefur á undanförnum árum skapað og sýnt myndverk sem urðu til undir áhrifum af þeirri dvöl. Sem listamaður sækist hún eftir djúpstæðum tengingum við efnin sem hún notar og hefur lagt stund bæði á pappírsgerð og alkemíu litagerðar. Þegar hún hélt aftur í vinnustofudvöl við Kriti haustið 2024 þá tók hún með sér úrval hreinna litarefna – lapis lazuli, malakít, spanskgrænu, rauðan lit úr möðruplöntu, túrkís og indigó. Litina hafi Eygló fengið í indversku borginni Jaipur þar sem hún heimsótti líka vinnustofu þekkts listamans, S. Shakir Ali, sem veitti innsýn í hefðir við gerð indverskra smámynda (e. miniature paintings). „Verkin sem ég vann að hafa beina tilvísum í þessa ævafornu hefð hvað efnivið varðar. Ég notaði hefðbundna smámynda-pensla til að ná fram fínleika teikningarinnar með pensilstrokunum og málaði með sögulegum litarefnum, unnum meðal annars úr plöntum og hálfeðalsteinum.“
Málverkaröðin sem Eygló nefnir Raga – Tilbrigði í lit /Colours of Raga , varð til undir áhrifum af tónleikum með klassískri raga-tónlist sem voru haldnir kvöld eitt í höllinni við hlið vinnustofanna í Kriti en þar sátu tónlistarmenn og gestir þétt saman. Meðan á tónleikunum stóð dró Eygló upp fínlegar blýantsteikningar með ósjálfráðum hætti, en slíkar teikningar eru gerðar án þess að hafa augun á pappírnum. Orðið raga þýðir að lita eða litblær, og vísar til spunaþattarins í klassískri indverskri tónlist, sem er byggð á melódískum formum. Reynslan af teikningunni sem viðbragð við tónlistinni skapaði hringlaga formin sem eru grunnþáttur í bæði málverkum Eyglóar og skúlptúrnum Áhrif/Impact, en hann er mótaður úr þunnum koparplötum sem línur hafa verið hamraðar í.
Einar Falur Ingólfsson
Langtímum saman á ferli sínum sem ljósmyndari hefur Einar Falur unnið með hugmyndir um tíma, hvort sem um er að ræða stök verkefni þar sem hann hefur fetað í fótspor ljósmyndara og myndlistarmanna fyrri tíma til að sjá og skilja hvernig landslagið sem þeir fönguðu hefur breyst, eða þegar hann nýlega skrásetti veðrið daglega í heilt ár. „Í Varanasi byrjaði ég að hugsa um hvernig djúp og heillandi lög uppsafnaðra tíma mátti sjá svo víða, hvort sem um var að ræða byggingar sem hafa gegnum aldirnar verið byggðar hver ofan á aðra, í flagnandi málningu á húsveggjum eða í menningu hins daglega lífs.“ Í áranna rás hefur Einar Falur nú varið mörgum mánuðum í Varanasi og skráð um leið meðal annars flæði tímans í tveimur myndröðum. Annars vegar eru það „tímalínur“ sem settar eru saman af litljósmyndum sem teknar eru á stórformats myndavél og sýna sama sjónarhornið ár eftir ár og þá uppsafnaðar breytingar sem birtast í áferðum og litum staðanna og bygginga. Önnur sería eru vídeóverk kvikmynduð á völdum stöðum og sýnd í síendurtekinni hringrás eins og lifandi ljósmyndir af mannlífinu. „Í verkum mínum er ég líka sífellt í sjónrænu samtali við listmenn og ljósmyndara sem hafa starfað á Indlandi á undan mér og á margskonar hátt haft áhrif á það hvernig ég sé og horfi. Og verkin eru líka alltaf dagbók lífs míns, eins manns í flæði þeirra milljóna sem eiga leið þarna um.“
Guðjón Ketilsson
Heimsókn haustið 2023 í hinn forna garð í Sarnath, þar sem merkar rústir og minjar hafa verið grafnar upp, hafði mikil áhrif á Guðjón. Sarnath er í útjaðri Varanasi-borgar og er einn mesti helgistaður búddista en þar kenndi Gautama Búdda í fyrsta skipti samkvæmt Lalitastara sutra-ritunum. Garðurinn er meðal annars frægur fyrir margar útskornar áheita-stúpur. „Í þessum sívalningslaga steinformum, sem öll eru einstök og engin tvö eins, og eru á sinn hátt abstrakt myndir af Búdda, sá ég fyrir mér tengingar við viss eldri verka minna.“ Að mörgu leyti á svipaðan hátt og Guðjón hefur áður kannað arkitektúrísk og mannleg form, byrjaði hann í Kriti á röð blýantsteikninga á grófan pappír, þar sem hann leikur með hugmyndir um form stúpanna, án þess þó að líkja eftir einhverjum þeirra. Þegar hann hafði svo snúið heim til Íslands, þá leiddu þessar teikningar af sívalingslaga formum yfir í einstaka röð viðarskúlptúra sem Guðjón mótaði í rennibekk. Þeir eru alls 25 talsins, bornir á þá mismunandi saffran-litir og hver stendur á sínum stöpli. Saffran litirnir „birtust mér í raun hver sem ég fór um í Varanasi. Við að horfa til baka sé ég fyrir mér endalausar útgáfur af litnum. Þegar Indverjar tala um litinn saffran, þá lýsa þeir ekki endilega einum tilteknum lit af nákvæmni, heldur nær „saffran“ yfir ýmiskonar tóna og litbrigði, frá föl-rauðleit-gulum yfir í appelsínugult.“
Á sýningunni eru einnig tvö stór verk sett saman úr fjölda litríkra ljósmynda sem listamaðurinn tók á götum Varanasi. Þessi myndverk eru kompósisjónir unnar undir áhrifum af hinum formföstu og litríku indversku smámyndum (e. miniatures).
Sigurður Árni Sigurðsson
Í málverkum sínum kannar Sigurður Árni hvernig skugginn er notaður við að skapa tilfinningu fyrir fjarvídd og þrívídd á yfirborði strigans. Að vissu leyti er hann að ögra hugmyndinni um það hvað sé málverk, brýtur það niður í grunnþætti þar sem bakgrunnur eða striginn er sjálfur hluti af myndbyggingu litarins sem er í forgrunni. Á meðan hann dvaldi á Indlandi haustið 2023 beindust sjónir Sigurðar Árna iðulega að fólkinu sem mátti sjá út um allt á landinu, sem og samstillingum úr bæði daufum og ýktum litum. „Konurnar sem skáru grasið á akrinum voru klæddar fagurlega ofnu rauðu og himinbláu silki, í hróplegri andstöðu við fölt grasið. Garðyrkjumennirnir í almenningsgarðinum voru fagurlega prúðbúnir í appelsínugula jakka, eins og útsprungin sumarblóm, en betlarinn við dyrnar sást ekki svo vel því hann féll að leirlitaðri jörðinni.Það eru andstæður í öllu og um leið einhver einkennilegur ómöguleiki sem slær að manni. Stöðugt er maður minntur á þessar andstæður; ríkidæmi og örbirgð, gróðursæld og auðn, mikilfenglegheit andans í handverki og hönnun gegn aumustu hvötum og fátækustu mynd mannlegrar stöðu, líf og dauði.“
Hinar gríðarmiklu andstæður sem blasa svo víða við á Indlandi fengu Sigurð Árna til að nálgast strigann með nýjum hætti, skilja í fyrsta skipti jaðrana eftir ósnerta (án málaðs grunns), til að skapa einskonar ramma innan marka jaðars verksins. Við það er sem málaðir ferhyrndir fletirnir með götum á, virðist fljóta á berum ósnertum striganum. „Það sem er nýtt og áhugavert fyrir mig í þessum verkum er nekt hugmyndarinnar þegar striginn myndar ramma hringinn í kringum flöt málverksins. Það er búin til ákveðin vídd og rými myndað sem afhjúpar og brýtur niður á sama tíma. Eitthvað verður til en það sem býr það til eyðir því á sama tíma. Byggir upp og brýtur niður.“
Getum við bætt efni síðunnar?