Fara í efni

Atvinnu- og menningarnefnd

20. fundur 15. maí 2024 kl. 17:00 - 18:55 Félagsheimilinu Borg
Nefndarmenn
  • Anna Katarzyna Wozniczka formaður
  • Pétur Thomsen fulltrúi sveitarstjórnar
  • Anna María Daníelsdóttir fulltrúi sveitarstjórnar
Fundargerðin var færð í tölvu og hana ritaði Pétur Thomsen

1. 17. Júní 2024
A. Búið að leigja poppvél hjá Rent a Party.
B. Hoppukastali verður leigður hjá skátunum.
C. Búið er að panta VÆB, á eftir að staðfesta tíma.
D. AKW athugar með auka tónlistaratriði.
E. ATH með að fá sveitarstjórn til að skammta kökuna.
F. Búið að finna hátíðarræðukonu sem verður áttræð á árinu.
G. Ríkið gefur bók og köku á 17. júní.
H. Blaklið UMF Hvatar sér um að grilla pylsur og fær ágóðann af því.
I. AM athugar með að fá stórt tjald frá Tintron til að hafa kökuna og grillið í.
Til vara ef veður verður óhagstætt.
J. Skrúðgangan verður hefðbundin, gengið frá Olís og hringinn.
K. Muna eftir stefi fyrir fjallkonuna.
L. Hækka þarf verðið á pylsunum, stungið upp á 300 krónum.
M. AKW athugar með svið/sendibíl fyrir skemmtiatriðið.
N. Þarf að kaupa fánaveifur ca. 60 til 100 stk.
Drög að dagskrá 17. Júní
13:00 Skrúðganga
Innidagskrá
Ræða formanns og kynning á dagskrá
Hátíðarræða
Verðlaunaafhending (ef gott veður, flutt út)
Fjallkonan
Útidagskrá um klukkan 14:30
Auka tónlistaratriði?
VÆB
Hátíðarkaka
Pylsur, popp, gos og sælgæti
Hoppukastali og leiktæki
2. Borg í sveit / Grímsævintýri
Formaður er í sambandi við kvenfélagið varðandi dagsetningu á viðburðinum.
3. Önnur mál
A. Vinna er í gangi varðandi móttökuáætlun.
B. Atvinnu- og Menningarnefnd leggur mikla áherslu á að fá póstfangi sveitarfélagsins verði breitt úr Selfoss í Grímsnes- og Grafningshrepp. Mörg dæmi hafa komið upp þar sem þetta hefur valdið ruglingi. Nefndin ætlar að taka saman rök fyrir því að fá þessu breytt.

Næsti fundur verður haldinn 5. júní klukkan 17:00

Ekki fleira tekið fyrir og fundi slitið klukkan 18:55

Getum við bætt efni síðunnar?