Framkvæmda- og veitunefnd
Fundargerð.
10. fundur samgöngunefndar Grímsnes- og Grafningshrepps var haldinn í stjórnsýsluhúsinu Borg, föstudaginn 12. júní 2015 kl. 8:00.
Fundinn sátu:
Birgir Leó Ólafsson, formaður
Björn Kristinn Pálmarsson
Jón Örn Ingileifsson
Fundargerðin var færð í tölvu og hana ritaði Birgir Leó.
Úthlutun styrkja til vegabóta á sumarhúsasvæðum í sveitarfélaginu.
Á þessum fundi er farið yfir umsóknir sumar- og lóðahúsaeiganda um styrki til viðhalds vega í
Grímsnes- og Grafningshreppi. Fjármagn til úthlutunar er 1.800.000 kr. fyrir árið 2015.
Við mat á umsóknum og fjárhæða til hvers félags er horft til fjölda sumarhúsa á svæðinu, aldur
svæðanna og hver úthlutunin hefur verið síðustu ár.
Verkefnin snúast flest að því að bæta burð vega og hefla, leggja bundið slitlag og ganga frá
ræsum.
Eftirtaldir sóttu um og fengu úthlutað styrk skv. neðangreindu:
Félag frístundahúsalóðaeigenda Hæðarbrúna í Grímsnesi 25.000 kr.
Félag sumarhúsaeig í Kerengi 75.000 kr.
Félag lóðareigenda í Miðborgum 75.000 kr.
Félag lóðareigenda í Farengi (í landi Miðengis) Grímsnesi 100.000 kr.
Heiðartjörn, félag í frístundabyggð 25.000 kr.
Félag landeigenda við Mosabraut og Hrauntröð í Vaðnesi 75.000 kr.
Öndverðarnes 250.000 kr.
Félag sumarbústaðaeig 5 braut 50.000 kr.
Félag sumarlóðaeigenda Ásabraut Grímsnesi 75.000 kr.
Félag lóðareiganda í landi Minna Mosfells 75.000 kr.
Klausturhóll 100.000 kr.
Félag sumarhúsaeiganda í Norðurkotslandi FSNN 250.000 kr.
Félag sumarhúsalóðaeiganda við Þórstíg 50.000 kr.
Búrfell II ehf. 100.000 kr.
Félag sumarhúsalóðaeiganda í landi Syðri Brúar. 150.000 kr.
Selhóll, félag sumarhúsaeigenda 175.000 kr.
Hólaborgir sumarhúsafélag í Hallkelshólum 175.000 kr.
Ekki fleira tekið fyrir og fundið slitið kl. 9:00
Birgir Leó Ólafsson
Björn Kristinn Pálmarsson
Jón Örn Ingileifsson