Framkvæmda- og veitunefnd
Fundargerð.
14. fundur samgöngunefndar Grímsnes- og Grafningshrepps var haldinn í stjórnsýsluhúsinu Borg, þriðjudaginn 13. mars 2018 kl. 20.00.
Fundinn sátu:
Steinar Sigurjónsson, formaður
Björn Kristinn Pálmarsson
Jón Örn Ingileifsson
Fundargerðin var færð í tölvu og hana ritaði Steinar Sigurjónsson
1. Úthlutun vegstyrkja til frístundabyggða.
Farið var yfir umsóknir sem bárust um styrki til viðhalds á vegum í frístundabyggðum sveitarfélagsins. Heildarfjármagn til úthlutunar er 1.800.000 kr. fyrir árið 2018. Við mat á umsóknum félaganna var horft til heildarfjölda húsa á viðkomandi svæði, heildarvegalengdar svæðisins, umfangs verksins og styrkja sem félögin hafa fengið síðustu ár. Verkefnin snúast flest um að bera í vegi og lagfæra þá.
Samgöngunefnd leggur til að eftirtalin félög hljóti styrk skv. neðangreindu
Félag sumarhúsaeigenda Þóroddsstöðum við Stangarlæk 50.000 kr.
Félag sumarhúsaeigenda í Lyngmóum, í landi Þórisstaða 50.000 kr.
Þrastaungarnir 50.000 kr.
Félag frístundahúsalóðaeigenda Hæðarbrúna í Grímsnesi 50.000 kr.
Félag sumarhúsaeiganda við Kjarrmóa 50.000 kr.
Félag sumarhúsaeigenda í Öldubyggð 100.000 kr.
Félag sumarbústaðaeigenda við 5. braut við Álftavatn 100.000 kr.
Félag land- og frístundahúsaeigenda við A og B götu úr Norðurkotslandi 100.000 kr.
Félag sumarhúsaeigenda við Þórsstíg 100.000 kr.
Bakkabyggð 100.000 kr.
Félag sumarhúsaeigenda í Kerengi 100.000 kr.
Sumarhúsafélagið Víðihlíð 100.000 kr.
Félag sumarbústaðaeigenda Villingavatni 100.000 kr.
Félag sumarbústaðaeigenda í Norðurkotslandi og nágrenni 150.000 kr.
Sumarhúsafélagið Hestvík 150.000 kr.
Féso – Félag sumarhúsaeigenda í Oddsholti 150.000 kr.
Selhóll, félag sumarhúsaeigenda 150.000 kr.
Öndverðanes ehf. 150.000 kr.
Alls bárust 18 umsóknir, og leggur samgöngunefnd því til að öll þau félög er sóttu um hljóti styrk.
Ekki fleira tekið fyrir og fundi slitið kl. 22:13.