Framkvæmda- og veitunefnd
Fundargerð.
18. fundur samgöngunefndar Grímsnes- og Grafningshrepps var haldinn í stjórnsýsluhúsinu Borg, fimmtudaginn 25. apríl 2019 kl. 20.00.
Fundinn sátu:
Steinar Sigurjónsson, formaður
Bergur Guðmundsson
Jón Örn Ingileifsson
Fundargerðin var færð í tölvu og hana ritaði Bergur Guðmundsson
1. Úthlutun vegstyrkja til frístundabyggða.
Farið var yfir umsóknir sem bárust um styrki til viðhalds á vegum í frístundabyggðum sveitarfélagsins. Heildarfjármagn til úthlutunar er 1.800.000 kr. fyrir árið 2019. Við mat á umsóknum félaganna var horft til heildarfjölda húsa á viðkomandi stað, heildarvegalengdar svæðisins, umfangs verksins og styrkja sem félögin hafa fengið síðustu ár. Verkefnin snúast flest um að bera í vegi og lagfæra þá.
Samgöngunefnd leggur til að eftirtalin félög hljóti styrk skv. neðangreindu;
Þrastarungar sumarhúsafélag 50.000 kr.
Félag frístundahúsalóðareigenda Hæðarbrúna í Grímsnesi 50.000 kr.
Félag lóða og sumarbústaðaeigenda (Kjarrengi) 50.000 kr.
Félag sumarhúsaeigenda Kerendi 75.000 kr.
Félag sumarbústaðaeigenda við 5.braut við Álftavatn 75.000 kr.
Félag sumarhúsaeigenda við Þórsstíg 75.000 kr.
Félag sumarhúsaeigenda í Öldubyggð 75.000 kr.
Félag sumarhúsaeigenda í Kerhrauni E-svæði 75.000 kr.
Félag sumarhúsaeigenda í Oddsholti 100.000 kr.
Klausturhóll sumarhúsafélag 100.000 kr.
Selhóll félag sumarhúsaeigenda 100.000 kr.
Félag sumarhúsaeigenda v/Ásskóga 100.000 kr.
Kerhraun, félag sumarhúsaeigenda 100.000 kr.
Félag landeigenda í Nesi við Apavatn 100.000 kr.
Félag lóðareigenda í landi Minna Mosfells (FLUMM) 100.000 kr.
Félag lóðareigenda í Miðborgum 100.000 kr.
Vaðlækur félag sumarhúsaeigenda við Vaðlækjaveg 100.000 kr.
Félag sumarbústaðaeigenda í Norðurkotslandi og nágrenni 150.000 kr.
Öndverðarnes ehf. 225.000 kr.
Alls bárust 19 gildar umsóknir og leggur samgöngunefnd til að öll þau félög sem áttu gilda umsókn hljóti styrk.
3 umsóknir voru ógildar. þar sem þær samræmast ekki reglum umsóknarinnar.
Úthlutun styrkja til uppbyggingu flóttaleiða í frístundabyggð.
Farið var yfir umsóknir sem bárust vegna uppbygginga flóttaleiða í frístundabyggðum sveitarfélagsins. Heildarfjármagn til úthlutunar er 1.000.000 kr. fyrir árið 2019.
Samgöngunefnd leggur til að eftirtalin félög hljóti styrk skv. neðangreindu;
Félag lóðareigenda í Farengi (í landi Miðengis) 1.000.000 kr.
1 gild umsókn barst og leggur samgöngunefnd til að félagið hljóti styrk.
1 umsókn var ógild. þar sem hún samræmdist ekki reglum umsóknarinnar.
Ekki fleira tekið fyrir og fundið slitið kl. 22:00