Fara í efni

Framkvæmda- og veitunefnd

22. fundur 09. desember 2024 kl. 08:30 - 10:50 Stjórnsýsluhúsinu Borg
Nefndarmenn
  • Smári B. Kolbeinsson formaður
  • Björn Kristinn Pálmarsson
  • Þorkell Þorkelsson boðaði forföll
Starfsmenn
  • Ragnar Guðmundsson umsjónarmaður aðveitna
  • Steinar Sigurjónsson umsjónarmaður umhverfismála
Fundargerðin var færð í tölvu og hana ritaði Smári B. Kolbeinsson

1. Vesturbyggð 1. áfangi.
a) Fundargerð verkfundar nr. 13 dags. 02.12.2024
Fundargerðin lögð fram til kynningar ásamt framvinduskjali vegna lokauppgjörs.

2. Hreinsistöð á Borg.
Fyrir liggja gögn vegna umsóknar um styrk til umhverfis-, orku og loftlagsráðuneytisins vegna fráveituframkvæmda.
Framkvæmda- og veitunefnd leggur til að sveitarstjóra verði falið að sækja um styrkinn.

3. Íþróttamiðstöð á Borg – viðbygging.
a) Fundargerð verkfundar nr. 8 dags. 14.11.2024.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
b) Fundargerð verkfundar nr. 9 dags. 28.11.2024.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
c) Lyftingagólf.
Farið yfir lausn sem gæti hentað vegna gólfs á lyftingasvæði í viðbyggingu íþróttamiðstöðvar.
Lagt fram til kynningar.
d) Efri hæð.
Farið yfir grunnmynd efri hæðar nýrrar viðbyggingar.
Framkvæmda- og veitunefnd leggur til að kaffistofa verði minnkuð, símaklefum verði fækkað í einn og að hönnuðir endurskoði stærð móttökurýmis m.t.t. prent- og ljósritunarrýmis. Ragnari falið að koma athugasemdum til hönnuðar.

4. Skógartún og stígar - áætlanir.
Ragnar fór yfir kostnaðaráætlun vegna jarðvinnu, gatnagerðar, götulýsingar og veituframkvæmda við Skógartún. Jafnframt var farið yfir áætlaðan kostnað við gerð þeirra stíga sem eftir er að klára samkvæmt skipulagi.
Lagt fram til kynningar en upplýst um að gert hafi verið ráð fyrir þessum kostnaði í fjárhagsáætlun.

5. Blágrænar ofanvatnslausnir.
Fyrir liggur kostnaðaráætlun vegna blágrænna ofanvatnslausna í Túnahverfi á Borg.
Lagt fram til kynningar.

6. Heitavatnsöflun í Vaðnesi.
a) Minnisblað Verkís dags. 4.11.2024 um stækkun á dælustöð í Vaðnesi, stækkun á rafkerfi.
Fyrir liggur minnisblað Verkís, dags. 4.11.2024 vegna virkjunar á borholu VN-34 í Vaðnesi. Í minnisblaðinu er fjallað um afláætlun eftir stækkun dælustöðvar og áætlaðan kostnað við stækkun heimtaugar og stækkun rafstöðvar.
Minnisblaðið lagt fram til kynningar.
b) Greinargerð ÍSOR dags. 26.11.2024 um blöndunarreikninga fyrir lághitavatn í Vaðnesi.
Fyrir liggur minnisblað ÍSOR, dags. 26.11.2024 um blöndunarreikninga fyrir lághitavatn í Vaðnesi.
Minnisblaðið lagt fram til kynningar.

7. Minnisblað dags. 18.11.2024 um fund með Brunavörnum Árnessýslu vegna brunahana á stofnlögnum vatnsveitu Grímsnes- og Grafningshrepps.
Fyrir liggur minnisblað dags. 18.11.2024 um fund með BÁ vegna aðgengis að vatni til slökkvistarfa í sveitarfélaginu. Í dag er vatnsveitan með þrjá brunahana í rekstri, á Borg, í Ásborgum og á athafnasvæðinu við Borgargil. Þess utan eru brunahanar við virkjanir Landsvirkjunar og ON og við Sólheima. Að mati BÁ væri æskilegt að fjölga brunahönum en mikilvægt er að brunahanar séu staðsettir við stofnvegi sem ráða við umferð tankbíla og tryggja þarf nægjanlegan þrýsting og rennsli í brunahana ef til útkalls kemur. Í minnisblaðinu eru lagðar til fjórar staðsetningar þar sem æskilegt væri að koma upp brunahönum og kerfið myndi þola mikla vatnstöku á skömmum tíma.
Framkvæmda- og veitunefnd leggur til að umsjónarmanni aðveitna verði falið að sjá til þess að aðgengi að slökkvivatni verði aukið í áföngum með uppsetningu brunahana á þeim staðsetningum sem lagðar eru til í minnisblaðinu.

8.Vatns- og hitaveitumál að Minna-Mosfelli.
Fyrir liggur tölvupóstur frá Einari G. Steingrímssyni þar sem óskað er eftir viðræðum við sveitarfélagið um að tengja nýtt sumarhúsahverfi að Minna-Mosfelli við vatnsveitu og hitaveitu sveitarfélagsins.
Að mati framkvæmda- og veitunefndar er ekki mögulegt að tengja hverfið við vatnsveitu sveitarfélagsins á árinu 2025 enda er búið að vinna og afgreiða fjárhagsáætlun fyrir næsta ár. Jafnframt er bent á að allar stærri veituframkvæmdir eru unnar í gegnum útboð eða verðfyrirspurn. Varðandi möguleika á að tengjast hitaveitu sveitarfélagsins liggur fyrir að ekki er nægjanlegt vatn til staðar til að tengja ný hverfi við veituna.

Ekki fleira tekið fyrir og fundið slitið kl. 10:50

Getum við bætt efni síðunnar?