Fara í efni

Sveitarstjórn

616. fundur 15. maí 2026 kl. 09:00 - 10:20 Stjórnsýsluhúsinu Borg og á Teams
Sveitarstjórn
  • Ása Valdís Árnadóttir oddviti
  • Björn Kristinn Pálmarsson
  • Dagný Davíðsdóttir
  • Ragnheiður Eggertsdóttir
  • Smári Bergmann Kolbeinsson
  • Fjóla Steindóra Kristinsdóttir sveitarstjóri
Fundargerðin var færð í tölvu og hana ritaði Fjóla Steindóra Kristinsdóttir.

Ása Valdís Árnadóttir oddviti setti fund, bauð fundargesti velkomna og leitaði athugasemda við fundarboð, engar athugasemdir voru við boðun fundarins.
1. Fundargerðir.
a. Fundargerð 33. Skólanefndar Grímsnes- og Grafningshrepps, 12. maí 2026.
Mál nr. 1 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Lögð fram 33. fundargerð Skólanefndar, dagsett 12. maí 2026. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar;
Mál 1; Skóladagatal Kerhólsskóla.
Vegna fyrirhugaðrar námsferðar starfsfólks alls skólans í maí 2027 eru starfsdagar í grunnskóladeild Kerhólsskóla skólaárið 2026-2027 átta á kennslutíma, eða þremur fleiri en venja er. Heildarfjöldi kennsludaga yfir skólaárið helst sá sami eða 180 dagar. Grunnskólakennarar eru með þessu að færa þrjá endurmenntunardaga frá ágúst 2026 fram til maí 2027. Fyrirhugað er að hefja innleiðingu á verkefninu Heillasporum og er námsferðin liður í því. Nefndin leggur samhljóða til við sveitarstjórn að samþykkja framlögð skóladagatöl fyrir skólaárið 2026-2027. Sjá nánari umræðu um skóladagatal 2026-2027 í fundargerð 32. fundar skólanefndar. Helstu breytingar frá fyrri samþykkt eru tilfærsla á vetrarfríi og leiðrétting á skipulagsdegi þann 10. mars í hálfan dag úr heilum degi.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi skóladagatöl fyrir leik- og grunnskóladeild Kerhólsskóla 2026-2027.
b. Fundargerð 12. fundar nefndar um skólahúsnæði Kerhólsskóla, 5. maí 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
c. Fundargerð 34. fundar Framkvæmda- og veitunefndar, 11. maí 2026.
Mál nr. 2 og 4 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Lögð fram 34. fundargerð Framkvæmda- og veitunefndar, dagsett 11. maí 2026. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr. 2; Umsókn um varmadælustyrki.
a. Umsókn um varmadælustyrk vegna fasteignarinnar Fremriklettur
Fyrir liggur umsókn um varmadælustyrk dags. 12.03.2026 frá Hlöðveri Þór Árnasyni vegna fasteignarinnar Fremriklettur.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að umsækjanda verði veittur styrkur allt að 50% af útlögðum kostnaði í samræmi við reglur hitaveitu Grímsnes- og Grafningshrepps um styrki vegna varmadælna.
b. Umsókn um varmadælustyrk vegna fasteignarinnar Árvegur 6
Fyrir liggur umsókn um varmadælustyrk dags. 01.05.2026 frá Inga Birni Leifssyni vegna fasteignarinnar Árvegur 6.
Sveitarstjórn samþykkir samljóða að umsækjanda verði veittur styrkur allt að 50% af útlögðum kostnaði í samræmi við reglur hitaveitu Grímsnes- og Grafningshrepps um styrki vegna varmadælna.
c. Umsókn um varmadælustyrk vegna fasteignarinnar Krókur 1
Fyrir liggur umsókn um varmadælustyrk dags. 30.04.2026 frá Jóni Matthíasi Sigurðssyni vegna fasteignarinnar Krókur 1.
Sveitarstjórn samþykkir samljóða að umsækjanda verði veittur styrkur allt að 50% af útlögðum kostnaði í samræmi við reglur hitaveitu Grímsnes- og Grafningshrepps um styrki vegna varmadælna.
d. Umsókn um varmadælustyrk vegna fasteignarinnar Stóri-Háls
Fyrir liggur umsókn um varmadælustyrk dags. 17.04.2026 frá Rúnu Jónsdóttur vegna fasteignarinnar Stóri-Háls.
Sveitarstjórn samþykkir samljóða að umsækjanda verði veittur styrkur allt að 50% af útlögðum kostnaði í samræmi við reglur hitaveitu Grímsnes- og Grafningshrepps um styrki vegna varmadælna.
Mál nr. 4; Erindi frá rekstraraðila tjaldsvæðisins á Borg.
Fyrir liggur erindi frá rekstraraðila tjaldsvæðisins á Borg um heimild til framkvæmda. Í 3. gr. leigusamnings um tjaldsvæðið kemur fram að allar framkvæmdir á svæðinu eru háðar sérstöku samþykki leigusala. Leigutaki óskar eftir heimild til endurnýjunar á búnaði í þjónustuhúsi. Jafnframt óskar rekstraraðili eftir heimild til að byggja svið í rjóðrinu á tjaldsvæðinu þar sem fyrirhugað er að halda viðburði s.s. lifandi tónlist. Í tillögunni kemur fram að leigutaki leggi sjálfur út fyrir framkvæmdakostnaði sem afskrifast um 20% á ári. Smári Bergmann Kolbeinsson vék af fundi undir þessum lið.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirhugaðar framkvæmdir í takt við fyrirliggjandi samning.
d. Fundargerð 324. fundar skipulagsnefndar UTU, 29. apríl 2026.
Mál nr. 9, 10, 11, 12 , 13, 14 og 21 þarfnast staðfestingar sveitarstjórnar.
Lögð er fram 324. fundargerð skipulagsnefndar UTU, dagsett 29. apríl 2026. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr. 9; Vaðnes L168289; Vaðnesnáma og aðkomuvegur; Framkvæmdaleyfi – 2603079.
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi á Vaðnesnámu og aðkomuveginum að Vaðnesnámu.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins sem framkvæmdin tekur til, er ekki talin þörf á grenndarkynningu.
Mál nr. 10; Írafossvirkjun; Selfosslína 1 - endurnýjun og lagning jarðstrengs; Tenging við Írafossvirkjun; Aðalskipulagsbreyting – 2601055.
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir kynningu skipulagslýsingar, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Í breytingunni felst að Selfosslína 1 sem liggur frá Ljósafossstöð að Selfossi verður endurnýjuð að hluta. Fyrirhugaðar framkvæmdir fela í sér að Selfosslína 1 verður endurnýjuð að hluta að Írafoss- og Ljósafossstöðvum. Breytingarnar fela í sér lagningu jarðstrengs á um allt að 3 km leið frá Ljósafossstöð að mastri 8 í núverandi loftlínu. Á kafla verður núverandi loftlínuhluti línunnar tekinn niður. Umsagnir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða aðalskipulagsbreytingu til kynningar og umsagna í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 11; Stangarlækur 3 L236421; Aukið byggingarmagn og bílskúr; Deiliskipulagsbreyting – 2604053.
Lögð er fram óveruleg deiliskipulagsbreyting sem tekur til Stangarlæks 3 L236421 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Skilmálar vegna byggingarheimilda á byggingareit fyrir íbúðarhús Stangarlæks 3 breytast.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins og að málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
Mál nr. 12; Nesjavallavirkjun L170925; Vinnsluhola; Framkvæmdarleyfi – 2604062.
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Nesjavallavirkjunar L170925 í Grímsnes- og Grafningshrepp. Fyrirhugað er að útbúa borplan á skilgreindu borsvæði á svæði A skv. deiliskipulagi Nesjavallavirkjunar, sem er ætlað fyrir viðbótarniðurrennslisholur. Á borplaninu verður boruð allt að 2.500 m djúp, stefnuboruð vinnsluhola. Um er að ræða borholu sem ætlað er að koma inn í kerfið með núverandi borholum í rekstri til að halda afköstum Nesjavallavirkjunar stöðugum. Aðkoma að fyrirhuguðu borplani er frá Grafningsvegi, um aðkomuveg að Nesjavallavirkjun og áfram um vegslóða sem liggur að borsvæðinu þar sem holan verður staðsett. Borun vinnsluholunnar kallar ekki á frekari vegagerð.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins sem framkvæmdin tekur til er ekki talin þörf á grenndarkynningu.
Líkt og áður leggur sveitarstjórn ríka áherslu á að við frekari nýtingu jarðhitaauðlinda og annarra náttúruauðlinda innan marka sveitarfélagsins verði tryggt að nærsamfélagið njóti raunverulegs ávinnings af nýtingunni. Núverandi staða, þar sem nær öll orka sem unnin er innan sveitarfélagsins er flutt út af svæðinu án sambærilegs ávinnings fyrir heimabyggð, er ekki ásættanleg til framtíðar.
Mál nr 13; Hæðarendi L168254; Mótun baðlóns; Framkvæmdaleyfi – 2604065.
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Hæðarenda L168254 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Óskað er eftir framkvæmdarleyfi á grunni deiliskipulags fyrir gróf mótun baðlóns, lagningu aðkomuvegar, lagnavinnu og mótun bílastæðis á svæðinu. Það skipulag sem um ræðir er Deiliskipulag Baðstaðar í landi Hæðarenda.
Björn Kristinn Pálmarsson vék af fundi undir þessum lið.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 14; Villingavatn III (L224665); byggingarheimild; vinnubúðir – 2604048.
Móttekin var umsókn þann 16.04.2026 um byggingarheimild fyrir 184,7 m2 tímabundnum vinnubúðum vegna vinnu við skógrækt á landinu Villingavatn III (L224665) í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ekki verði gerð krafa um grenndarkynningu vegna málsins þar sem um svo óveruleg frávik sé að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Mál nr. 21; Afgreiðslur byggingarfulltrúa dagsett 22. apríl 2026 - nr. 26- 249 - 2604001F.
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa dagsett þann 22. apríl 2026, nr. 26-249.
e. Fundargerð 325. fundar skipulagsnefndar UTU, 13. maí 2026.
Mál nr. 14, 15, 16, 17, 18, 19, 20 og 25 þarfnast staðfestingar sveitarstjórnar.
Lögð er fram 325. fundargerð skipulagsnefndar UTU, dagsett 13. maí 2026. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr. 14; Ormsstaðir L168271; Frístundasvæði F66; Deiliskipulag – 2506021.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags, eftir kynningu, sem tekur til frístundasvæðis F66 í landi Ormsstaða. Í skipulaginu felst m.a. skilgreining lóða og byggingarreita og leiðréttingar á legum lóða og vega innan svæðisins. Umsagnir og athugasemdir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim og uppfærðum gögnum.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða deiliskipulagið og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.
Mál nr. 15; Tóftabraut 6 L196616; Tóftabraut 3 L196614; Deiliskipulagsbreyting – 2603058.
Lögð er fram tillaga óverulegrar deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Tóftabrautar 6 L196616 og Tóftabrautar 3 L196614, en breytingin snýr að lóðarmörkum þeirra. Vegna breytingarinnar stækkar Tóftabraut 6 úr 7606 m² í 8102,5 m². Tóftabraut 3 minnkar úr 7911 m² í 7414,5 m². Kvöð er á Tóftabraut 3 vegna aðkomu að Tóftabraut 6. Einnig er breytt skilmálum deiliskipulagsins. Fellt verður út "Á hverri lóð er heimilt að reisa frístundahús og með hámarksnýtingarhlutfall upp á 0.03. Hámarksstærð aukahúss má vera 40 fm." Í staðinn kemur "Heimilt er að byggja frístundahús og aukahús ásamt geymslu. Hámarks nýtingarhlutfall er 0.03."
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins og að málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
Mál nr. 16; Nesjavallavirkjun L170925; Borplön; Framkvæmdaleyfi – 2604075.
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Nesjavallavirkjunar L170925 í Grímsnes-og Grafningshreppi. Fyrirhugað er að útbúa borplön á skilgreindu niðurrennslissvæði skv. deiliskipulagi Nesjavallavirkjunar, sem er ætlað fyrir viðbótarniðurdælingarholur. Á borplönunum verða boraðar allt að 2.250 m djúpar niðurdælingarholur. Nánar er gerð grein fyrir framkvæmdinni í umsókn.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins sem framkvæmdin tekur til en umsækjandi er ekki talin þörf á grenndarkynningu.
Líkt og áður leggur sveitarstjórn ríka áherslu á að við frekari nýtingu jarðhitaauðlinda og annarra náttúruauðlinda innan marka sveitarfélagsins verði tryggt að nærsamfélagið njóti raunverulegs ávinnings af nýtingunni. Núverandi staða, þar sem nær öll orka sem unnin er innan sveitarfélagsins er flutt út af svæðinu án sambærilegs ávinnings fyrir heimabyggð, er ekki ásættanleg til framtíðar.
Mál nr. 17; Sogsvegur 30 L169553 í Norðurkotslandi; Stækkun lóðar; Deiliskipulagsbreyting – 2605020.
Lögð er fram tillaga óverulegrar deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Sogsvegar 30, L169553 í Grímsnes- og Grafningshrepp. Í breytingunni felst að stærð og lega lóðarinnar breytist í samræmi við merkjalýsingu.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
Mál nr. 18; Klausturhólar L177600, Seyðishólar; Námusvæði skipt í tvö svæði; Aðalskipulagsbreyting – 2605033.
Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á aðalskipulagi Grímsnes - og Grafningshrepps 2020-2032. Breytingin felst í að skipta upp efnistökusvæðinu á Klausturhólum E17 í tvennt, nýtt svæði, E32 tekur yfir nyrsta hluta svæðisins sem nú er innan E17, þ.e. þess svæðis sem er innan upprunalands Klausturhóla í Grímsnesi L168258. Útmörk verða óbreytt.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða viðkomandi breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Málið verði sent Skipulagsstofnun til samþykktar áður en niðurstaða sveitarstjórnar verður kynnt.
Mál nr. 19; Klausturhólar L177600; Uppskipting námusvæðis í tvo hluta; Deiliskipulag – 2511042.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags, eftir kynningu skipulagslýsingar, fyrir gerð deiliskipulags sem tekur til Klausturhóla L177600 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Fyrirhugað deiliskipulag nær til hluta námusvæðis Klausturhólar (E17) í Grímsnes- og Grafningshreppi. Efnistökusvæðið er um 18 ha að stærð, þar er heimiluð malarnáma fyrir allt að 200.000 m3 ásamt efnislosun. Fyrirhugað er að skipta efnistökusvæðinu í tvennt og verða um 13-15 ha af land innan deiliskipulagssvæðis. Deiliskipulagið mun taka til nýtingu svæðisins og frágangi þess til næstu 15 ára en áætlað er að loka svæðinu 2040. Áætlað er að vinna allt að 150.000 m3 af efni úr námunni, samhliða vinnslunni verður unnið að landmótun og frágangi svæðisins. Gerð verður minniháttar breyting á aðalskipulagi þar sem efnistökusvæðinu E17 verður skipt upp í tvennt og verður nýtt svæði skilgreint fyrir norðurhlutann, eða þess hluta svæðis sem nú er innan E17 og innan upprunalands Klausturhóla í Grímsnesi (L168258). Innan þess svæðis verður heimiluð efnistaka fyrir allt að 50.000 m3 og verður fyrir utan fyrirhugaða afmörkun á deiliskipulagssvæði. Skilmálar E17 verða því lítt breyttir, umfram það að svæðinu verður skipt upp. Umsagnir og athugasemdir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða deiliskipulagið til kynningar og umsagna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 20; Klausturhólar L177600; Efnistaka, tilfærsla efnistipps og frágangur; Framkvæmdaleyfi - 2605035.
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Klausturhóla L177600 í Grímsnes- og Grafningshrepp. Í framkvæmdinni felst vinnsla á undir 50.000 m³ af efni, tilfærsla núverandi efnistipps inn á svæðinu og frágangur þess hluta svæðisins þar sem efnistippurinn er nú staðsettur. Jafnframt verður unnið að landmótun, jöfnun fláa og yfirborðsfrágangi innan framkvæmdasvæðisins. Markmið framkvæmdarinnar er að bæta ásýnd svæðisins og tryggja vandaðan frágang á röskuðu landi.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 25; Afgreiðslur byggingarfulltrúa dagsett 5. maí 2026 - nr. 26- 250 - 2604004F.
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa dagsett þann 5. maí 2026, nr. 26- 250.
f. Fundargerð stjórnar Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings (SVÁ), 4. maí 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
i. Aukaaðalfundur Héraðsskjalasafns Árnesinga bs., 14. apríl 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
j. Aukaaðalfundur Tónlistarskóla Árnesinga bs., 14. apríl 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
k. Aukaaðalfundur Listasafns Árnesinga bs., 14. apríl 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
l. Aukaaðalfundur Byggðasafns Árnesinga bs., 14. apríl 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
m. Aukaaðalfundur Brunavarna Árnessýslu bs., 14. apríl 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
n. Fundargerð vorfundar Héraðsnefnda Árnesinga bs., 14. apríl 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
o. Fundargerð 93. fundar stjórnar Bergrisans bs., 21. apríl 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
p. Fundargerð 36. fundar Brunavarna Árnessýslu, 30. apríl 2026.
Lögð fram 36. fundargerð Brunavarna Árnessýslu, dagsett 30. apríl 2026. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar;
Mál 1; Viðauki við fjárhagsáætlun 2026 vegna mannaráðningar.
Á auka aðalfundi sem haldinn var 14. apríl 2026 var sett fram tillaga/minnisblað um ákvörðun stjórnar um að uppfylla lágmarkskröfur um mönnun dagvaktar slökkviliðs. Tillagan var samþykkt og var slökkviliðsstjóra falið að gera viðauka við fjárhagsáætlun 2026 og vinna minnisblað þar sem áhrif til framtíðar eru lögð fram og lögð fyrir sveitarstjórnir til samþykktar.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir framlagðan viðauka við fjárhagsáætlun Brunavarna Árnessýslu fyrir árið 2026, breytingin fellur innan núverandi fjárheimilda.
Mál 2; Lántaka.
Lánsumsókn vegna fjárfestinga á byggingu nýrrar slökkvistöðvar á Flúðum og vegna kaupa á nýrri slökkvibifreið sem staðsett verður í Reykholti hefur verið samþykkt hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Tekið verður 240 milljóna króna lán sem verður skipt í tvo flokka, 150 milljónir í LSS 55 til 29 ára til fjármögnunar á byggingu slökkvistöðvar á Flúðum og 90 milljónir í LSS 39 til 13 ára vegna kaupa á nýrri slökkvibifreið fyrir slökkvistöð BÁ í Reykholti.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða hér með á fundi sínum að veita einfalda ábyrgð á láni Brunavarna Árnessýslu hjá Lánasjóði sveitarfélaga og veðsetja tekjur sveitarfélagsins til tryggingar ábyrgðinni í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 1. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Ábyrgðin nær til láns að fjárhæð, allt að kr. 240.000.000,- ásamt vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði, samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru þegar lánið er tekið. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni. Sveitarstjórn hefur kynnt sér skilmála viðkomandi skuldabréfaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins. Samþykkið nær jafnframt til undirritunar lánasamnings og þess að sveitarfélagið taki á sig þær skyldur sem þar greinir. Lánið er tekið til fjármögnunar á byggingu nýrrar slökkvistöðvar á Flúðum og vegna kaupa á nýrri slökkvibifreið sem staðsett verður í Reykholti. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.Sveitarstjórnin skuldbindur sveitarfélagið sem eiganda Brunavarna Árnessýslu til að breyta ekki ákvæðum samþykkta félagsins sem kveða á um að félagið megi ekki, að neinu leyti, fara í eigu einkaaðila. Ef sveitarfélagið selur eignarhlut sinn til annarra opinberra aðila, skuldbindur sveitarfélagið sig til að tryggja að nýr eigandi yfirtaki ábyrgð á láninu í hlutfalli við eignarhlut sinn í félaginu.
Jafnframt er Fjólu Steindóru Kristinsdóttur, sveitarstjóra, kt. 270272-5849, veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Grímsnes- og Grafningshrepps, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.
q. Fundargerð 218. fundar stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga bs., 5. maí 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
r. Fundargerð 219. fundar stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga bs., 8. maí 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
s. Fundargerð 254. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands, 28. apríl 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
t. Fundargerð 997. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 17. apríl 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
u. Fundargerð ársfundar Brákar íbúðafélags hses., 28. apríl 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
2. Björgunarmiðstöð – niðurstöður útboðs.
Lögð er fram opnarfundargerð vegna opnunar tilboða í verkið "Björgunarmiðstöð á Borg" dagsett 5. maí 2026. Um er að ræða byggingu 1.135 fermetra (með millilofti) Björgunarmiðstöð á Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi með steinullareiningum.
Eftirfarandi tilboð bárust;

Tilboðsaðili

Tilboðsupphæð kr.

Atlas Verktakar ehf.

274.827.750

Mannverk

339.955.558

E. Sigurðsson

362.370.845

Byggingarfélagið Hvati

276.100.000

Fylkir ehf.

232.388.000

Alefli ehf.

306.660.148

Húsameistari ehf.

298.520.000

Sjammi ehf.

304.667.313

SHP consulting ehf.

238.445.668

Iðjuverk

232.638.947

HR Smíði

220.950.000

Tré og straumur ehf. og Gæðabygg

229.996.448

K16 ehf.

283.576.143

Þelamörk

291.380.864

Dóttir og son

309.720.275

 

 

Kostnaðaráætlun

217.350.000 kr


Að auki barst tilboð frá Múr og Málningarþjónustunni Höfn í tölvupósti að upphæð 296.100.000 kr.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að undirrita verksamning við lægstbjóðanda, svo fremi að hann uppfylli framlagðar hæfnis- og útboðskröfur.
3. Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026.
Lagður er fram viðauki 1 við fjárhagsáætlun Grímsnes- og Grafningshrepps fyrir árið 2026.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða viðauka.
4. Prókúra fyrir Grímsnes- og Grafningshrepp.
Lagt er til að veita deildarstjóra fjármála- og stjórnsýslu prókúru fyrir Grímsnes- og Grafningshrepp, kt. 590698-2109 og Hitaveitu Grímsnes- og Grafningshrepps, kt. 610409-0910.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita Kareni Huld Gunnarsdóttur, kt. 250171-4399, deildarstjóra fjármála- og stjórnsýslu, prókúru vegna bankareikninga sveitarfélagsins fyrir Grímsnes- og Grafningshrepp, kt. 590698-2109 og Hitaveitu Grímsnes- og Grafningshrepps, kt. 610409-0910.
5. Drög að samkomulagi um nýtingu námu í Klausturhólum.
Lögð fram drög að samkomulagi milli Grímsnes- og Grafningshrepps, Sveitarfélagsins Árborgar og Vinnuvéla Svínavatni ehf. vegna áframhaldandi efnistöku og lokunar námusvæðis á Klausturhólum, skilgreindu sem efnistökusvæði E17 samkvæmt aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020–2032. Samkomulagið felur m.a. í sér að sett verði fram lokunaráætlun fyrir námusvæðið með það að markmiði að námunni verði lokað eigi síðar en árið 2040, en jarðvegslosunarstað eigi síðar en árið 2032. Þá er kveðið á um framkvæmdaleyfi, eftirlit, frágang svæðisins, ábyrgðir og skyldur námuréttarhafa vegna landmótunar og lokunar svæðisins.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram, hafa samband við málsaðila og ganga frá og undirrita samkomulagið fyrir hönd sveitarfélagsins.
6. Undanþága vegna borunar á tilraunaholu eftir köldu vatni í Kaldárhöfða.
Lagt er fram til kynningar bréf Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, dagsett 28. apríl 2026, þar sem ráðherra veitir Grímsnes- og Grafningshreppi undanþágu frá ákvæði 1. mgr. 16. gr. reglugerðar nr. 650/2006 um framkvæmd verndunar vatnasviðs og lífríkis Þingvallavatns, á grundvelli 2. mgr. sömu greinar. Undanþágan er veitt vegna borunar á tilraunaholu eftir köldu vatni í landi Kaldárhöfða, í tengslum við sameiginlegt vatnsöflunarverkefni Grímsnes- og Grafningshrepps, Sveitarfélagsins Árborgar og Flóahrepps.
7. Klausturhólar gjallnámur L168965; Áframhaldandi efnistaka; Framkvæmdaleyfi –2506103.
Vísað er til ákvörðunar sveitarstjórnar á 598. fundi, 20. ágúst 2025, um framkvæmdaleyfisumsókn Suðurtaks ehf. (mál nr. 25). Með ákvörðuninni samþykkti sveitarstjórn samhljóða að gera ekki athugasemdir við útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Afgreiðsla málsins, þar á meðal útgáfa framkvæmdaleyfis, hefur hins vegar tafist verulega hjá Umhverfis- og tæknisviði Uppsveita bs. Í ljósi þessa telur sveitarstjórn rétt að málið verði tekið upp að nýju og því komið í réttan farveg.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela Umhverfis- og tæknisviði Uppsveita bs. að annast kynningu málsins að nýju, útbúa greinargerð um afgreiðslu leyfisins og önnur nauðsynleg gögn.
8. Neðra-Apavatn L168269; Sauðhólsvegur 6; Sauðhólsvegur 8 (áður Neðra-Apavatn lóð) L169306; Stofnun og breytt stærð og staðfang lóða – 2107045.
Málið var áður tekið fyrir á 615. fundi sveitarstjórnar er nú tekið fyrir að nýju til leiðréttingar á fyrri bókun sveitarstjórnar. Vísað er til fyrri afgreiðslu sveitarstjórnar þar sem ekki voru gerðar athugasemdir við stofnun lóða, enda yrðu staðföng samræmd í samræmi við reglugerð um skráningu staðfanga.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við stofnun Sauðhólsvegs 6 og felur Umhverfis- og tæknisviði Uppsveita bs. að vinna að staðfangabreytingum á og við Sauðhólsveg í samræmi við framangreint.
9. Erindi frá Torfæruklúbbnum – leyfi til að halda íslands- og bikarmót í sumar.
Fyrir liggur beiðni frá Torfæruklúbbnum um leyfi til að halda íslandsmót, laugardaginn 30. maí og bikarmót, laugardaginn 29. ágúst í Stangarhyl L210787.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemdir við að íslands- og bikarmót verði haldin.
10. Samþykktir Héraðsnefndar Árnesinga – fyrri umræða.
Lagðar fram til fyrri umræðu samþykktir Héraðsnefndar Árnesinga.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa samþykktunum til síðari umræðu.
11. Fundarboð á félagsfund Samorku, 19. maí 2026.
Fyrir liggur fundarboð frá lögfræðingi Samorku, þar sem boðað er til félagsfundar Samorku þann 19. maí 2026.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að Smári Bergmann Kolbeinsson, formaður framkvæmda- og veitunefnar verði fulltrúi sveitarfélagsins á fundinum.
12. Aðalfundarboð Eignarhaldsfélags Suðurlands hf., 27. maí 2026.
Fyrir liggur að tilnefna þarf fulltrúa sveitarfélagsins á aðalfund Eignarhaldsfélags Suðurlands hf. sem haldinn verður 27. maí 2026.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að Smári Bergmann Kolbeinsson verði fulltrúi sveitarfélagsins á aðalfundinum.
13. Aðalfundarboð FENÚR, 29. maí 2026.
Fyrir liggur aðalfundarboð FENÚR sem haldinn verður 29. maí 2026.
Lagt fram til kynningar.
14. Ársreikningur og ársskýrsla Félags 60+ í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Lögð fram til kynningar ársskýrsla og ársreikningur Félags 60+ í Grímsnes- og Grafningshreppi fyrir árið 2025. Sveitarstjórn fagnar því að hér sé búið að vera starfrækt félag 60+ í ár og óskar félaginu velfarnaðar um ókomna tíð.
15. Heilbrigðisráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 81/2026, „Drög að skýrslu heilbrigðisráðherra um áætlun um framkvæmd lýðheilsustefnu til fimm ára, 2026–2030“.
Erindi frá Heilbrigðisráðuneytinu þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 81/2026, „Drög að skýrslu heilbrigðisráðherra um áætlun um framkvæmd lýðheilsustefnu til fimm ára, 2026–2030".
Lagt fram til kynningar.
16. Umsagnarbeiðni vegna máls nr. 0553/2026.
Fyrir liggur umsagnarbeiðni frá Flóahreppi vegna máls nr. 0553/2026 í Skipulagsgátt. Málið varðar auglýsingu tillögu að nýju deiliskipulagi – Hvítárbyggð; Skilgreining frístundasvæðis. Kynningartími er frá 7. maí 2026 til 19. júní 2026.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við framlagða tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Hvítárbyggð í Flóahreppi.
17. Bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi um umsögn vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, H Frístundahús að Lautarbrekku 12, 805 Selfossi, fnr. F2345109.
Fyrir liggur bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, H Frístundahús að Lautarbrekku 12, 805 Selfossi, fnr. F2345109.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemdir við að veitt verði leyfi í rekstrarflokki II, H Frístundahús að Lautarbrekku 12, fnr. F2345109 í Grímsnes- og Grafningshreppi með fyrirvara um jákvæða umsögn byggingarfulltrúa.

 

Ekki fleira tekið fyrir og fundi slitið kl. 10:20

Skjöl

Getum við bætt efni þessarar síðu?