Sveitarstjórn
Guðmundur Finnbogason oddviti setti fund, bauð fundargesti velkomna og leitaði athugasemda við fundarboð, engar athugasemdir voru við boðun fundarins.
1. Fundargerðir.
a) Fundargerð 328. fundar skipulagsnefndar UTU, 24. júní 2026.
Mál nr. 10, 11, 12, 13, 14, 15, 20 og 21 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Lögð er fram 328. fundargerð skipulagsnefndar UTU, dagsett 24. júní 2026. Eftirfarandi
dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr. 10; Hvítuborgir L218057; Uppskipting lands; Deiliskipulagsbreyting – 2606021.
Lögð er fram tillaga óverulegrar deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Hvítuborga L218057, í
Grímsnes- og Grafningshreppi. Breytingin felst í því að landinu er skipt upp í tvær landeignir.
Nyrðri landeignin fær staðfangið Hvítuborgir 2.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða framlagða breytingu á
deiliskipulagi svæðisins. Málið fær málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.
123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt að ekki
verði gerð krafa um grenndarkynningu þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins en
umsækjandi.
Mál nr. 11; Hvítuborgir L218057; Hvítuborgir 2; Stofnun lóðar – 2606048.
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 15.06.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna
160/2024, er varðar stofnun nýrrar lóðar. Óskað er eftir að stofna lóðina Hvítuborgir 2, 33,1 ha.
úr landi Hvítuborga L218057.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd við stofnun
lóðarinnar samkvæmt fyrirliggjandi umsókn.
Mál nr. 12; Stangarhylur L210787; Lagning heimtaugar; Framkvæmdaleyfi – 2606032.
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Stangarhyls, L210787, í Grímsnes- og
Grafningshreppi. Í framkvæmdinni felst plæging háspennustrengs vegna heimtaugar í landi
Stangarhyls.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða útgáfu framkvæmdaleyfis á
grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 13; Efri-Brú Kvíanes L191871; Breytt landnotkun úr frístundabyggð í landbúnaðarland; Aðalskipulagsbreyting – 2606061.
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar sem tekur til Efri-Brúar Kvíanes L191871, Efri-Brú
Kvíanes 4 (L238165), Efri-Brú Kvíanes 3 (L238164) og Efri Brú (L196003) í Grímsnes- og
Grafningshreppi. Breytingin felst í því að um 14,6 ha landsvæði úr frístundalandi F12 verði breytt
í landbúnaðarland L3. Tilefni breytingarinnar er að landeigendur hyggjast reisa einbýlishús á
lóðunum sem verða deiliskipulögð í framhaldi af þessari breytingu.
Afgreiðslu málsins er frestað.
Mál nr. 14; Ásgarður L168229; Aðlagað byggingarhlutfall; Deiliskipulagsbreyting – 2606051.
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til deiliskipulags frístundabyggðar í landi Ásgarðs
L168229, í Grímsnesi. Í breytingunni felst að nýtingarhlutfall hækkar úr 0,03 í 0,05.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða framlagða breytingu á
deiliskipulagi svæðisins. Málið fær málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.
123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi.
Andrés Bertelsen vék af fundi undir þessum lið. Ragna Ívarsdóttir, varamaður tók sæti á fundinum
meðan málið var til meðferðar.
Mál nr. 15; Nesjavellir L170825; Lagning 2 km háspennustrengs; Framkvæmdaleyfi – 2606047.
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Nesjavalla L170825, í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Framkvæmdin felst í að plægja 11 kV háspennustreng frá dreifistöð við Stapavík S115 í landi Nesjar
að dreifistöð S030 sem er í u.þ.b. 2 km fjarlægð í landi Nesjavalla.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli
13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 20; Afgreiðslur byggingarfulltrúa dagsett 10. júní 2026 – 26-253 – 2606002F.
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa dags. 10. júní 2026, nr.
26-253.
Mál nr. 21; Afgreiðslur byggingarfulltrúa dagsett 18. júní 2026 – 26-254 – 2606003F.
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa dags. 18. júní 2026, nr.
26-254.
b) Fundargerð 329. fundar skipulagsnefndar UTU, 8. júlí 2026.
Mál nr. 8, 9, 10, 11, 12, 13, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 20, 30 og 31 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Lögð er fram 329. fundargerð skipulagsnefndar UTU, dagsett 8. júlí 2026. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast
afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr. 8; Torfastaðir 1 L170828; Færsla rannsóknarsvæðis fyrir efnistöku; Framkvæmdaleyfi – 2606081.
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Torfastaða 1 L170828 í Grímsnes- og
Grafningshreppi. Í framkvæmdinni felst að rannsóknarsvæðið fyrir efnistöku er fært til.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða breytingu á framkvæmdaleyfi, dagsett
30. júní 2025, sem veitt var á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í
færslu rannsóknarsvæðis fyrir efnistöku innan Torfastaða 1 (L170828), en umfang framkvæmdarinnar
verður óbreytt frá upphaflegu leyfi, þ.e. rannsókn á allt að 5.000 m³ af efni. Sveitarstjórn samþykkir
jafnframt að fyrra rannsóknarsvæði verði lokað með fullnægjandi frágangi og að núverandi aðalheimreið
verði nýtt vegna efnisflutninga í samræmi við umsögn Vegagerðarinnar.
Mál nr. 9; Syðri-Brú L168277; Úr frístundabyggð í athafnasvæði; Aðalskipulagsbreyting – 2503029.
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir auglýsingu, sem tekur til breytinga á
aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Svæðið sem breytingin nær til er Syðri-Brú
L168277 en í breytingunni felst skilgreining á athafnasvæði og vatnsbóli fyrir uppsetningu
átöppunarverksmiðju fyrir neysluvatn. Einnig er frístundabyggð breytt í landbúnaðarsvæði í kringum
athafnarsvæðið. Umsagnir bárust á auglýsingartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins
ásamt uppfærðum gögnum.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða framlagða breytingu á
aðalskipulagi eftir auglýsingu. Sveitarstjórn telur að með fullnægjandi hætti hafi verið brugðist
við þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingatíma skipulagsbreytingarinnar. Sveitarstjórn samþykkir
jafnframt að óskað verði eftir því við Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun að
aðalskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við
3. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 10; Villingavatn L170831; Nytjaskógrækt og landgræðsla; Aðalskipulagsbreyting – 25025090.
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir auglýsingu og afgreiðslu HMS, sem tekur til
breytingar á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps innan jarðarinnar Villingavatns L170831.
Með breytingunni verður sett inn nýtt skógræktar- og landgræðslusvæði á Villingavatni og heimiluð
skógrækt á tæplega 1.400 ha svæði. Markmið framkvæmdarinnar er að rækta skóg sem skapar
timburnytjar og græðir upp raskað land. Umsagnir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við
afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim og uppfærðum gögnum ásamt afgreiðslu HMS. Lögð er fram
umsögn Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS), dags. 28. maí 2026, vegna breytingar á
Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020–2032 fyrir svæði við Villingavatn, sem
sveitarstjórn samþykkti 13. apríl 2026 og sent var til staðfestingar samkvæmt 32. gr.
skipulagslaga. Í erindi HMS eru gerðar athugasemdir við forsendur og umfjöllun um umhverfismat
aðalskipulagsbreytingarinnar.
Sveitarstjórn hefur farið yfir fyrirliggjandi gögn, þar á meðal greinargerðina og telur að með
henni hafi verið brugðist við þeim atriðum sem Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS)
óskaði eftir frekari umfjöllun um. Sveitarstjórn áréttar að hún ber samkvæmt skipulagslögum ábyrgð
á stefnumótun um landnotkun í aðalskipulagi og telur að fyrirliggjandi gögn og umfjöllun veiti
fullnægjandi grundvöll fyrir ákvörðun málsins. Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi greinargerð
sem rökstuðning við fyrri ákvörðun sína og staðfestir samhljóða fyrri ákvörðun um breytingu á
Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020–2032 fyrir svæði við Villingavatn.
Mál nr. 11; Kiðjaberg L168257; Starfsmannahús; Deiliskipulagsbreyting – 2606033.
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Kiðjabergs L168257 í Grímsnes- og
Grafningshreppi. Breytingin felst í orðalagsbreytingu. Smáhýsi sögð vera til útleigu verða
starfsmannahús.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða að synja erindinu þar sem það
samræmist ekki stefnu Aðalskipulags Grímsnes- og Grafningshrepps 2020–2032. Bent er á að unnt sé að
fara í deiliskipulagsbreytingu þar sem landnotkun verði breytt í verslun og þjónustu, þar sem
mögulega sé hægt að gera ráð fyrir starfsmannahúsum.
Mál nr. 12; Lautarbrekka 7 L216993; Byggingarmagn breytt; Fyrirspurn – 2606097.
Lögð er fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu er varðar Lautarbrekku 7 L216993 í
Grímsnes- og Grafningshreppi. Breytingin felur í sér að hámarksstærð frístundahúss hækkar úr 180 m²
í 200 m² og að hámarksstærð aukahúsa/gestahúsa/geymslu hækkar úr 40 m² í 50 m².
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða framlagða breytingu á
deiliskipulagi svæðisins og að málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.
123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
Mál nr. 13; Klausturhólar L177600; Uppskipting námusvæðis í tvo hluta; Deiliskipulag – 2511042.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags, eftir kynningu, sem tekur til Klausturhóla L177600 í
Grímsnes-og Grafningshreppi. Fyrirhugað deiliskipulag nær til hluta námusvæðis Klausturhólar (E17)
í Grímsnes- og Grafningshreppi. Efnistökusvæðið er um 15 ha að stærð, þar er heimiluð malarnáma
fyrir allt að 150.000 m3 ásamt efnislosun. Fyrirhugað er að skipta efnistökusvæðinu í tvennt.
Deiliskipulagið mun taka til nýtingu svæðisins og frágangi þess til næstu 15 ára en áætlað er að
loka svæðinu 2040. Áætlað er að vinna allt að 150.000 m3 af efni úr námunni, samhliða vinnslunni
verður unnið að landmótun og frágangi svæðisins. Gerð verður minniháttar breyting á aðalskipulagi
þar sem efnistökusvæðinu E17 verður skipt upp í tvennt og verður nýtt svæði skilgreint fyrir norðurhlutann,
eða þess hluta svæðis sem nú er innan E17 og innan upprunalands Klausturhóla í Grímsnesi (L168258).
Innan þess svæðis verður heimiluð efnistaka fyrir allt að 50.000 m3 og verður fyrir utan
fyrirhugaða afmörkun á deiliskipulagssvæði. Skilmálar E17 verða því lítt breyttir, umfram það að
svæðinu verður skipt upp. Umsagnir og athugasemdir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram
við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða framlagt deiliskipulag og að það
verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir
gerð deiliskipulagstillögunnar liggja fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.
Mál nr. 14; Írafossvirkjun; Selfosslína 1 - endurnýjun og lagning jarðstrengs; Tenging við Írafossvirkjun; Aðalskipulagsbreyting – 2601055.
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir kynningu, sem tekur til breytinga á
aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020–2032. Í breytingunni felst að Selfosslína 1 sem
liggur frá Ljósafossstöð að Selfossi verður endurnýjuð að hluta. Fyrirhugaðar framkvæmdir fela í
sér að Selfosslína 1 verður endurnýjuð að hluta að Írafoss- og Ljósafossstöðvum. Breytingarnar fela
í sér lagningu jarðstrengs á um allt að 3 km leið frá Ljósafossstöð að mastri 8 í núverandi
loftlínu. Á kafla verður núverandi loftlínuhluti línunnar tekinn niður. Umsagnir bárust á
kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða framlagða tillögu að breytingu á
aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna Írafossvirkjunar í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga
nr. 123/2010. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt að tillagan verði auglýst samkvæmt 31. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 15; Tjaldafell fjallaríki L175568; Fjölgun lóða, auka byggingarheimildir og gistirými;
Aðalskipulagsbreyting – 2511039.
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir auglýsingu, sem tekur til breytinga á
aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 og gerð nýs deiliskipulags fyrir skálasvæðið
við Tjaldfell norðaustan Skjaldbreiðar L175568. Fyrirhugað er að fjölga lóðum, heimila stærri
mannvirki og fleiri gesti í gistingu. Umsagnir og athugasemdir bárust á auglýsingatíma og eru þær
lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim og uppfærðum gögnum.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða framlagða breytingu á
aðalskipulagi eftir auglýsingu. Sveitarstjórn telur að með fullnægjandi hætti hafi verið brugðist
við þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingatíma skipulagsbreytingarinnar. Vert er að taka það
fram að ekki er um að ræða orlofsþorp eða hótel sbr. lið 12.04 í lögum nr. 111/2021. Sveitarstjórn
samþykkir jafnframt að óskað verði eftir því við Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun að
aðalskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við
3. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 16; Tjaldfell skálasvæði; Skilgreining svæðis; Deiliskipulag – 2604012.
Lögð er fram, eftir auglýsingu, tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til Tjaldfells skálasvæðis í
Grímsnes- og Grafningshreppi. Lóðum er fjölgað og settir skilmálar fyrir hverja lóð, s.s.
byggingarheimildir, nýtingarhlutfall lóða og fjöldi gesta. Gerð er grein fyrir fyrirkomulagi
fráveitu. Lóðir eru á stærðarbilinu 5000 - 7500 m2. Afmarkaðar eru tvær nýjar lóðir austan
Tjaldfells, með heimild fyrir fleiri gestum í gistingu. Stærð skipulagssvæðis er um 15 ha. Samhliða
er unnið að breytingu á aðalskipulagi og er deiliskipulagið í samræmi við það. Við gildistöku nýs
deiliskipulags fellur eldra deiliskipulag úr gildi. Umsagnir bárust á auglýsingartíma og eru þær
lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim og uppfærðum gögnum.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða framlagt deiliskipulag eftir
auglýsingu. Sveitarstjórn telur að með fullnægjandi hætti hafi verið brugðist við þeim umsögnum sem
bárust á auglýsingatíma málsins. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt að deiliskipulagið taki gildi
með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Húsnæðis-, mannvirkja- og
skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 17; Biskupstungnabraut og Þingvallavegur; Hjólastígar; Aðalskipulagsbreyting – 2509014.
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir auglýsingu, sem tekur til breytinga á
aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Í breytingunni felst að settir eru inn göngu-
og hjólreiðastígar meðfram Biskupstungnabraut og Þingvallavegi. Markmiðið er að bæta möguleika á
vistvænum samgöngum, öryggi vegfarenda og heilsu íbúa og gesta, samhliða uppbyggingu ferðaþjónustu
og annarrar þjónustu í sveitarfélaginu. Umsagnir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við
afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim og uppfærðum gögnum.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða framlagða breytingu á
aðalskipulagi eftir auglýsingu. Sveitarstjórn telur að með fullnægjandi hætti hafi verið brugðist
við þeim umsögnum sem bárust á auglýsingatíma skipulagsbreytingarinnar. Sveitarstjórn samþykkir
jafnframt að óskað verði eftir því við Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun að
aðalskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við
3. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 18; Ásgarður; Breytt landnotkun; Aðalskipulagsbreyting – 2607013.
Lögð er fram tillaga óverulegrar aðalskipulagsbreytingar sem tekur til breytinga á aðalskipulagi
Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Breytingin felur í sér að skilgreining lands Ásgarðs II er
leiðrétt. Í því felst að landbúnaðarsvæði L2 er stækkað og frístundabyggð F25 er minnkuð sem því
nemur. Um er að ræða 1,9 ha svæði.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða framlagða óverulega breytingu á
Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020–2032. Málið fær málsmeðferð á grundvelli 2. mgr.
36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Sveitarstjórn
samþykkir jafnframt að málið verði sent Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til samþykktar
áður en niðurstaða sveitarstjórnar verður kynnt.
Mál nr. 19; Grímkelsstaðir 25 (L170840); byggingarheimild; sumarhús – 2607017.
Móttekin var umsókn þann 02.07.2026 um byggingarheimild fyrir sumarhúsi á tveimur hæðum,
grunnflötur hverrar hæðar er 77,3 m² samtals 144,4 m² á sumarbústaðalandinu Grímkelsstaðir 25
(L170840) í Grímsnes- og Grafningshreppi. Ekki liggur fyrir deiliskipulag fyrir svæðið.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða að málið fái málsmeðferð á
grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar. Berist
engar athugasemdir vegna grenndarkynningar skal málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Sveitarstjórn tekur jafnframt undir ábendingu skipulagsnefndar um að unnið verði deiliskipulag
fyrir svæðið í heild sinni.
Mál nr. 20; Grímkelsstaðir 27 (L170865); byggingarheimild; sumarhús – 2607022.
Móttekin var umsókn þann 07.07.2026 um byggingarheimild fyrir sumarhúsi á tveimur hæðum,
grunnflötur hverrar hæðar er 77,3 m², samtals 144,4 m² á sumarbústaðalandinu Grímkelsstaðir 27
(L170865) í Grímsnes- og Grafningshreppi. Ekki liggur fyrir deiliskipulag fyrir svæðið.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða að málið fái málsmeðferð á
grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar. Berist
engar athugasemdir vegna grenndarkynningar skal málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Sveitarstjórn tekur jafnframt undir ábendingu skipulagsnefndar um að unnið verði deiliskipulag
fyrir svæðið í heild sinni.
Mál nr. 30; Afgreiðslur byggingarfulltrúa dags. 24. júní 2026, nr. 26-255 – 2606005F.
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa þann 24. júní 2026, nr.
26-255.
Mál nr. 31; Afgreiðslur byggingarfulltrúa dags. 1. júlí 2026, nr. 26-256 – 2606006F.
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa þann 1. júlí 2026, nr.
26-256.
c) Fundargerð 2. fundar stjórnar byggðasamlagsins UTU, 24. júní 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
d) Fundargerð aukaaðalfundar Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs., 18. júní 2026.
Mál nr. 2 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Lögð er fram fundargerð aukaaðalfundar Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs., dagsett 18. júní
2026. Eftirfarandi dagskrárliður þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr. 2; Stofnsamningur.
Lögð er fram tillaga að breytingum á stofnsamningi Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða tillögu að breytingum á
stofnsamningi Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs. til fyrri umræðu og vísar henni til síðari
umræðu sveitarstjórnar.
e) Fundargerð 255. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands, 4. júní 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
f) Fundargerð 94. fundar stjórnar Bergrisans bs., 15. júní 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
g) Fundargerð aukaaðalfundar Bergrisans bs., 15. júní 2026.
Mál nr. 7 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Lögð er fram fundargerð aukaaðalfundar Bergrisans bs., dagsett 15. júní 2026. Eftirfarandi
dagskrárliður þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr 7; Önnur mál.
Á aukaaðalfundi Bergrisans bs. var samþykkt ályktun þar sem gerðar eru athugasemdir við drög að
reglugerð um málsmeðferð vegna ákvörðunar um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir og skorað
á ríkið að falla frá fyrirhuguðum breytingum og virða samkomulag ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps tekur undir ályktun aukaaðalfundar Bergrisans bs. frá 15. júní
2026 og felur sveitarstjóra að koma afstöðu sveitarstjórnar á framfæri við viðeigandi stjórnvöld.
2. Tilkynning um breytingar Landsbyggðarvagna.
Lagt fram erindi vegna fyrirhugaðra breytinga á rekstri Landsbyggðavagna. Sveitarstjóri og oddviti
gera grein fyrir umræðum á fundi sem haldinn var að beiðni sveitarfélagsins þann 23. júní 2026.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps lýsir yfir vonbrigðum með að ekki hafi verið haft samráð
við þau sveitarfélög sem breytingarnar varða áður en tillögur um breytingar á leiðakerfi
landsbyggðarvagna voru kynntar. Ekki hefur staðið á sveitarfélögunum og SASS að eiga samráð um
þessar breytingar á fyrri stigum málsins enda hefur SASS unnið að geiningu á þörfinni fyrir
almenningssamgöngur undanfarna mánuði.
Sveitarstjórn leggur ríka áherslu á að sú þjónusta sem hefur verið í boði verði áfram tryggð.
Fyrirhugaðar breytingar hafa bein áhrif á íbúa sveitarfélagsins, ekki síst framhaldsskólanema sem
nýta vagninn sem stoppar á Borg til daglegra ferða til og frá Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Sveitarstjórn telur mikilvægt að breytingar á almenningssamgöngum skerði ekki aðgengi íbúa að námi,
atvinnu og þjónustu og skorar á Vegagerðina að endurskoða fyrirhugaðar breytingar í samráði við
viðkomandi sveitarfélög.
3. Búfjárbeit og ágangur búfjár – Bréf frá Atvinnuvegaráðuneytinu.
Lagt fram bréf frá Atvinnuvegaráðuneytinu, dagsett 24. júní 2026, til áminningar um reglur um
búfjárbeit og ágang búfjár.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að eiga samtal við Vegagerðina um hvort tilefni sé til að bæta
merkingar á vegköflum þar sem lausaganga búfjár getur skapað aukna hættu fyrir vegfarendur.
4. Samkomulag um þjónustu við börn með fjölþættan vanda.
Lagt fram erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett 23. júní 2026, varðandi breytingar á
samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með
fjölþættan vanda.
Sveitarstjórn lýsir yfir þungum áhyggjum af nýrri reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins sem
gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um ábyrgð á þjónustu við börn með
fjölþættan vanda. Með reglugerðinni hefur ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á hópnum sem skilur
þannig eftir ábyrgð og kostnað hjá sveitarfélögum sem samkvæmt samkomulaginu á að hvíla á ríkinu.
Sveitarstjórn telur breytinguna óásættanlega og skorar á mennta- og barnamálaráðuneytið að
endurskoða reglugerðina þannig að hún verði í samræmi við samkomulag ríkis og sveitarfélaga.
5. Erindi til sveitarstjórnar – Búrfellsvegur.
Lagt fram erindi frá Berthu Kristínu Óskarsdóttur og Erlingi Valdimarssyni varðandi umferðaröryggi
á Búrfellsvegi, þar sem lýst er áhyggjum af auknum hraða eftir malbikun vegarins og lagt til að
gripið verði til hraðatakmarkandi aðgerða.
Sveitarstjórn þakkar fyrir erindið og felur sveitarstjóra að koma því á framfæri við Vegagerðina og
óska eftir að farið verði yfir umferðaröryggi á Búrfellsvegi, þar á meðal hraðatakmarkanir og
mögulegar úrbætur.
6. Erindi til sveitarstjórnar.
Lagt fram erindi frá Gunnari Bjarna Kristinssyni og Hallbirni V. Fríðhólm þar sem óskað er eftir
samtali við sveitarfélagið um mögulegan stuðning við samfélagslegt menningar- og nýsköpunarverkefni
í formi húsnæðis eða annars samstarfs.
Sveitarstjórn þakkar fyrir erindið og felur oddvita og sveitarstjóra að eiga samtal við erindishafa
um verkefnið og kanna nánar forsendur þess og möguleg tækifæri til samstarfs.
7. Úrskurður í máli nr. UUA2602004.
Lagður fram til kynningar úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr.
UUA2602004 vegna kæru á ákvörðunum sveitarstjórna Bláskógabyggðar og Grímsnes- og
Grafningshrepps um samþykkt deiliskipulags fyrir frístundabyggð í landi Heiðarbæjar í
Þingvallasveit, þar sem kærumálinu er vísað frá.
8. Aðalfundargerð Vottunarstofunnar Túns ehf. 2026, ársreikningur og ársskýrsla 2025.
Lögð fram til kynningar aðalfundargerð Vottunarstofunnar Túns ehf. frá árinu 2026, ásamt
ársreikningi og ársskýrslu fyrir árið 2025.
9. Ársreikningur samtaka orkusveitarfélaga 2025.
Lagður fram til kynningar ársreikningur Samtaka orkusveitarfélaga fyrir árið 2025.
10. Íþróttavika Evrópu 2026.
Lögð fram tilkynning frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands, dagsett 5. júní 2026, um að opnað
hafi verið fyrir umsóknir um styrki vegna Íþróttaviku Evrópu 2026.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela heilsu- og tómstundafulltrúa að fara yfir erindið og meta
möguleika sveitarfélagsins á þátttöku og umsókn um styrk vegna Íþróttaviku Evrópu 2026.
11. Áhersluatriði Landssambands eldri borgara.
Lagt er fram bréf frá Landssambandi eldri borgara, dagsett 23. júní 2026, varðandi mikilvægi virks
samráðs við eldra fólk og skipun öldungaráðs.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að koma erindinu á framfæri við sameiginlegt öldungaráð Uppsveita
og Félag 60+ í Grímsnes- og Grafningshreppi til upplýsingar.