Fara í efni

64 umsóknir um 6 íbúðarhúsalóðir á Borg

Á fundi sveitarstjórnar í gær, þann 2. október, úthlutaði sveitarstjórn lóðum í fyrsta áfanga nýrrar byggðar vestan við Borg. Gatnagerð á svæðinu er að mestu yfirstaðin og lokafrágangur við götur og lýsingu í fullum gangi þessa dagana.

Virkilega gleðilegt er að segja frá því að 64 umsóknir bárust um 6 lóðir og bindum við því vonir við að lóðarhafar hefji framkvæmdir á sínum lóðum með haustinu.

Líkur eru á að nýja byggðin verði mikil lyftistöng fyrir þéttbýlið á Borg og sveitarfélagið allt.

Viðræður eru hafnar vegna byggingarreits undir verslun og þjónustu á Miðsvæði og verður gaman að segja nánar frá framvindu þeirra þegar fram í sækir.

Síðast uppfært 3. október 2024
Getum við bætt efni síðunnar?