Fara í efni

Athafnalóðir – útboð á byggingarrétt

Nú á föstudaginn 28. júní kl. 13 rennur út tilboðsfrestur í 11 iðnaðarlóðir á nýju athafnasvæði við Sólheimaveginn. Um er að ræða nýtt 52 lóða athafnasvæði hefur verið skipulagt við Sólheimaveg, rétt suður af Borg. Þar er gert ráð fyrir hreinlegum léttum iðnaði og ýmiss konar rekstri. Uppbyggingu svæðisins verður skipt upp í áfanga, til að stuðla að hagkvæmni og heildaryfirbragði byggðarinnar og í fyrsta áfanga eru 11 lausar lóðir. 

Á svæðinu eru ýmsir möguleikar til atvinnureksturs, í næsta nágrenni við ört stækkandi byggðakjarna á Borg í Grímsnesi og í miðri stærstu frístundahúsabyggð landsins.

Eftirfarandi lóðir eru í boði ásamt lágmarksverði.


Nýja athafnasvæðið felur í sér mikil tækifæri fyrir framtakssamt fólk sem vill láta verkin tala, bæði núverandi íbúa og atvinnurekendur framtíðarinnar. Frekari upplýsingar og útboðsgögn má finna á borgisveit.is.

Síðast uppfært 25. júní 2024
Getum við bætt efni síðunnar?