Fara í efni

Aukaaðalfundur SASS

NÝ STJÓRN KOSIN Á AUKAAÐALFUNDI SASS Í JÚNÍ

Aukaaðalfundur Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, SASS, fór fram 7. júní sl. í Akóges salnum í Vestmannaeyjum. Fundurinn var haldinn þar sem í samþykktum samtakanna er kveðið á um að enginn skuli eiga sæti í stjórn lengur en sex ár samfellt. Úr stjórn gengu Ásgerður Kristín Gylfadóttir, þáverandi formaður, Grétar Ingi Erlendsson þáverandi varaformaður, Margrét Harpa Guðsteinsdóttir og Einar Freyr Elínarson. Á fundinum var staðfest ný stjórn samtakanna en í henni sitja:

Aðalmenn

  • Gauti Árnason, Sveitarfélagið Hornafjörður
  • Jóhannes Gissurarson, Skaftárhreppur
  • Anton Kári Halldórsson, Rangárþing eystra
  • Njáll Ragnarsson, Vestmannaeyjabær
  • Árni Eiríksson, Flóahreppur
  • Brynhildur Jónsdóttir, Sveitarfélagið Árborg
  • Arnar Freyr Ólafsson, Sveitarfélagið Árborg
  • Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, Hveragerðisbær
  • Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir, Sveitarfélagið Ölfus

Varamenn:

  • Eyrún Fríða Árnadóttir, Sveitarfélagið Hornafjörður
  • Einar Freyr Elínarson, Mýrdalshreppur
  • Eyþór Harðarson, Vestmannaeyjabær
  • Margrét Harpa Guðsteinsdóttir, Rangárþing ytra
  • Bragi Bjarnason, Sveitarfélagið Árborg
  • Ellý Tómasdóttir, Sveitarfélagið Árborg
  • Jón Bjarnason, Hrunamannahreppur
  • Sandra Sigurðardóttir, Hveragerðisbær
  • Erla Sif Markúsdóttir, Sveitarfélagið Ölfus

Anton Kári Halldórsson var kjörinn nýr formaður SASS og Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir varaformaður. Um leið og ný stjórn var boðin velkomin til starfa var fráfarandi stjórn þakkað fyrir gott starf á liðnum árum.

Á fundinum voru samþykktar ályktanir en meðal þeirra var ályktun um að breyta þurfi lögum um lögheimili og aðsetur sem feli í sér að einstaklingar, sem ekki eru með lögheimili í skráðu íbúðarhúsnæði, verði skráðir með ótilgreint heimilisfang í því sveitarfélagi þar sem viðkomandi var með tilgreint heimilisfang síðast, en ekki í því sveitarfélagi þar sem viðkomandi hefur haft þriggja mánaða samfellda dvöl. Einnig var samþykkt ályktun sem skorar á Alþingi að samþykkja tafarlaust samgönguáætlun fyrir árin 2024-2038 og tryggja fjármögnun rannsókna á jarðlögum á milli lands og Vestmannaeyja.

Í lok fundarins fór fram fyrsta vinnustofan vegna gerðar nýrrar Sóknaráætlunar Suðurlands fyrir tímabilið 2025 – 2029. Á fundinum var unnin styrkleika, veikleika, ógnana og tækifæra greining og unnið að markmiðasetningu með áherslu á sjálfbæra byggðaþróun. Þingfulltrúar unnu í hópum þar sem áherslur voru lagðar á þrjá meginflokka, þ.e. umhverfi, samfélag og atvinna og nýsköpun. Farið var yfir næstu skref við stefnumótunarvinnuna og sýnt myndband sem unnið hefur verið fyrir samtökin en það má á  heimasíðu SASS. 

Fundurinn var afar vel sóttur og mættu fulltrúar frá öllum sveitarfélögum sem aðild eiga að samtökunum og almenn ánægja var með fundinn og vinnustofuna.

Sjá fundargerð aukaaðalfundar SASS hér.

Síðast uppfært 28. júní 2024
Getum við bætt efni síðunnar?