Fara í efni

Borun lokið í Vaðnesi

Borun og prófunum á nýrri vinnsluholu, VN-34, í Vaðnesi er nú lokið. Holan var boruð í 600 m dýpi og er hún að gefa um 50-60 l/s af 70°C heitu vatni sem er svipað og núverandi vinnsluhola í Vaðnesi. Eftir eru langtímaprófanir en fyrstu prófanir gefa til kynna að nýja holan hafi lítil áhrif á vinnslu í holu VN-13B, núverandi vinnsluholu. Aðalæð VN-34 er í í um 540 m dýpi sem er ríflega 75°C heit og fer hitnandi.

Með þessari holu er búið að auka bæði vinnslugetu og afhendingaröryggi Hitaveitu Grímsnes- og Grafningshrepps. Nú fer af stað vinna vinna við virkjun á holunni og er stefnt á það fyrir árslok 2024. Borlausnum, ÍSOR og landeigendum í Vaðnesi er þakkað samstarfið.

Síðast uppfært 17. maí 2024
Getum við bætt efni síðunnar?