Byggðaþróunarfulltrúi verður á skrifstofu Grímsnes- og Grafningshrepps þriðjudaginn 21. janúar
Lína Björg Tryggvadóttir, byggðaþróunarfulltrúi verður á skrifstofu Grímsnes- og Grafningshrepps þriðjudaginn 21. janúar en áætlað er að hún verði alla vega einu sinni í mánuði á skrifstofunni á Borg en hún er þó til viðtals alla virka daga og alltaf hægt að senda henni tölvupóst.
Starf byggðaþróunarfulltrúa er margþætt en Lína veitir ráðgjöf og handleiðslu á sviði atvinnu- og byggðaþróunar, vinnur að upplýsingaöflun, miðlun upplýsinga og að svæðisbundnum verkefnum á sviði byggðaþróunar og atvinnuuppbyggingar.
Auk þess kemur hún að ferðatengdum málum og málum tengdum fjölmenningu. Byggðaþróunarfulltrúi sinnir einnig verkefnum í samráði við Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) og veitir hún því öllum sem til hennar leita upplýsingar um mögulega styrki úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands ásamt því að hún hefur góða þekkingu á styrkumsóknum og styrkjum sem í boði eru á hverjum tíma.
Ef þið þurfið aðstoð eða upplýsingar varðandi styrki, frumkvöðlaaðstoð eða annað sem viðkemur fjármögnun verkefna eða þú þarft almennar upplýsingar eða aðstoð er varðar atvinnuþróunar- eða byggðaþróunarverkefni þá hikið ekki við að hafa samband við Línu í gegnum netfangið lina@sveitir.is .