Fyrsta skóflustunga að nýju athafnasvæði við Sólheimaveg
01.09.2023
Iða Marsibil Jónsdóttir sveitarstjóri tók í dag fyrstu skóflustungu á nýju athafnasvæði við Sólheimaveg.
Deiliskipulag svæðisins tók gildi á vormánuðum og var verkið boðið út í kjölfarið og átti Suðurtak lægsta tilboð.
Svæðið í heild sinni telur 52 lóðir á um 23 hektara svæði en í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir 11 lóðum.
Borið hefur á aukinni eftirspurn eftir athafnalóðum sem henta stærri sem smærri fyrirtækjum og verktökum og er markmið verksins að styrkja atvinnulíf og byggðaþróun í sveitarfélaginu.
Verklok eru áætluð í nóvember 2023 og er stefnt er á úthlutun lóða í október.
Síðast uppfært 1. september 2023
Getum við bætt efni síðunnar?