Fara í efni

Grímsnes- og Grafningshreppur auglýsir eftir sumarstarfsmanni

Grímsnes- og Grafningshreppur auglýsir eftir sumarstarfsmanni í fjölbreytt og skemmtilegt starf. Um er að ræða fullt starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf í maí og unnið út júlí hið minnsta.

Helstu verkefni:

  • Umsjón og verkstjórn með vinnuskóla
  • Halda utan um vinnuskýrslur fyrir ungmenni í vinnuskóla
  • Almenn umhirða lóða og umhverfis við opin svæði og stofnanir sveitarfélagsins
  • Önnur tilfallandi verkefni í áhaldahúsi og á gámasvæði

Hæfniskröfur:

  • Skipulagsfærni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Bílpróf
  • Lágmarksaldur er 18 ár
  • Gott vald á íslensku og ensku
  • Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Þekking á meðferð og umhirðu verkfæra og áhalda
  • Reynsla af vinnu með ungmennum er kostur
  • Kerrupróf og/eða vinnuvélaréttindi eru kostur

 

Vinnuskólinn sinnir umhirðu, viðhaldi og fleiri verkefnum, oft í tengslum við garða, íþrótta- og útivistarsvæði. Verkefnin geta verið nokkuð fjölbreytt, svo sem að gróðursetja, slá og raka, hreinsa beð, grisja skóg, mála, tína rusl, sópa, þrífa, leggja hellur, grasþökur eða göngustíga.

Umsóknarfrestur er til og með 30. mars 2025.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Frekari fyrirspurnir og umsóknir sendist á gogg@gogg.is

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Öllum umsóknum verður svarað.

Síðast uppfært 3. mars 2025
Getum við bætt efni þessarar síðu?