Fara í efni

Hjartastuðtækjum fjölgað

Eftir ábendingu um að aðgengi að hjartastuðtækjum væri ábótavant í húsnæði sveitarfélagsins var ákveðið að bregðast hratt við og fjárfesta í tveimur tækjum til viðbótar auk skápa þannig að tækin væru sýnileg.

Auk þess að vera með tæki í sundlauginni eru nú einnig tæki í félagsheimilinu og við brúnna á milli skólans og skrifstofu sveitarstjórnar. Þó að við vonum að við þurfum aldrei að nota þessi tæki er gott að vita af þeim og stefnt á að kenna öllum starfsmönnum sveitarfélagsins að nota tækin við fyrsta tækifæri.

Síðast uppfært 30. apríl 2024
Getum við bætt efni síðunnar?