Fara í efni

Kerhólsskóli óskar eftir að ráða kennara í leikskóladeild

 

Kerhólsskóli óskar eftir að ráða kennara í leikskóladeild


Kerhólsskóli er sameinaður leik- og grunnskóli með u.þ.b. 80 nemendur á aldrinum 1. árs upp í 10. bekk þar af eru 25 börn í leikskóladeild sem er ört stækkandi. Skólinn er Grænfánaskóli og leggur áherslur á fagleg vinnubrögð, einstaklingsmiðað nám, umhverfismennt, útikennslu og heilsueflingu. Leikskóladeildin vinnur auk þess út frá kenningum um „Flæði“. Kerhólsskóli er í u.þ.b. 15. mín akstursfjarlægð frá Selfossi.

Vakin er athygli á stefnu Grímsnes- og Grafningshrepps um jafnan hlut kynja í störfum hjá sveitarfélaginu.

Kennari í 100% starf. Kennarar í leikskóladeild starfa eftir starfslýsingu leikskólakennara. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1.febrúar eða strax eftir áramót.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Góð færni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta og ritfærni er skilyrði. Miðað er við stig B2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum
  • Vilji til að gera góðan skóla betri

Fríðindi í starfi

  • Stytting vinnuvikunar
  • Skráningardagar í jóla-,páska- og vetrarfríum
  • Frítt fæði á vinnutíma

 

Fáist ekki kennari er möguleiki að ráða leiðbeinanda tímabundið.

Umsækjendur þurfa að sýna fram á hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur 13. desember 2024
________________________________________________________________

Nánari upplýsingar gefur Sigríður Þorbjörnsdóttir deildarstjóri leikskóla í síma 480-5520, 867-5175. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila berist til deildarstjóra sigga@kerholsskoli.is

Síðast uppfært 19. nóvember 2024
Getum við bætt efni síðunnar?