Kjörfundur í Grímsnes- og Grafningshreppi
30.05.2024
Kjörfundur vegna forsetakosninga fer fram laugardaginn 1. júní 2024.
Kosið verður í stjórnsýsluhúsinu á Borg
í fundarsal sveitarstjórnar á 2. hæð.
Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 18:00.
Kjósendur eru minntir á að hafa meðferðis persónuskilríki með mynd og framvísa þeim ef óskað er.
Kjörstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps
Síðast uppfært 30. maí 2024
Getum við bætt efni síðunnar?