Fara í efni

Lóan er komin: Opið fyrir umsóknir

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir í Lóu, styrktarsjóð sem veitir stuðning við nýsköpunarverkefni á landsbyggðinni. Markmið sjóðsins er að styðja við atvinnulíf og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni.

Umsóknarfrestur er til og með 30. mars 2025.

Að þessu sinni er sérstök áhersla lögð á verkefni sem:

  • Fela í sér hagnýtingu stafrænna lausna
  • Tengjast þróun og nýtingu tæknilausna í heilbrigðismálum
  • Stuðla að sjálfbærri nýtingu auðlinda eða afurða á nýskapandi hátt

Lóan styrkir verkefni sem komin eru af byrjunarstigi og eru komin af byrjunarstigi. Sjóðurinn er ætlaður einstaklingum og fyrirtækjum á landsbyggðinni sem vinna að nýskapandi lausnum og vilja efla nýsköpun í sínum heimahögum.

Nánari upplýsingar og umsóknarform má finna á www.hvin.is
Einnig veitir Lóa Auðunsdóttir upplýsingar í tölvupósti: loa.audunsdottir@hvin.is

Síðast uppfært 6. mars 2025
Getum við bætt efni þessarar síðu?