Óttar Guðlaugsson ráðinn sem heilsu- og tómstundafulltrúi Grímsnes- og Grafningshrepps
Óttar Guðlaugsson hefur verið ráðin sem heilsu- og tómstundafulltrúi Grímsnes- og Grafningshrepps. Hann er með M.T. gráðu í íþrótta- og heilsufræði frá Háskóla Íslands og góða reynslu úr kennslu og þjálfun barna og unglinga ásamt því að hafa staðið að ýmiskonar heilsutengdum námskeiðum fyrir alla aldurshópa.
Starf heilsu- og tómstundafulltrúa Grímsnes- og Grafningshrepps var auglýst með umsóknarfrest til 23. september 2024. Umsækjendur voru 19 talsins. Umsóknir voru flokkaðar með tilliti til þess hversu vel umsækjendur uppfylltu menntunar- og hæfniskröfur og ljóst að virkilega sterkar og góðar umsóknir lágu fyrir. Fjórir umsækjendur fengu boð í viðtal. Í auglýsingunni um starfið var leitað eftir öflugum einstakling til að bera ábyrgð á tómstundamálum sveitarfélagsins og hafa forystu um heilsueflandi samfélags verkefni á vegum sveitarfélagsins. Gerðar voru þær menntunar- og reynslukröfur að umsækjandi hefði háskólamenntun sem nýttist í starfi og reynslu annars vegar af tómstundastarfi og starfi með börnum og/eða unglingum. Óttar var metinn hæfastur til að gegna starfinu út frá þeim kröfum sem gerðar voru og var m.a. haft samband við samstarfsaðila úr fyrri störfum þar sem hann fékk mjög góð meðmæli.
Við bjóðum Óttar velkominn til starfa og hlökkum til samstarfsins.