Fara í efni

Samkomulag um starfslok sveitarstjóra Grímsnes- og Grafningshrepps

Samkomulag hefur náðst á milli sveitarstjóra Grímsnes- og Grafningshrepps og sveitarstjórnar um starfslok sveitarstjóra.

Sveitarstjórn vill þakka fráfarandi sveitarstjóra fyrir vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins og óska henni velfarnaðar í framtíðinni.

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps mun á næstu dögum taka ákvörðun um hvernig verður staðið að ráðningu nýs sveitarstjóra.

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps

Síðast uppfært 13. janúar 2025
Getum við bætt efni síðunnar?