Fara í efni

Fréttir

Notendakönnun fyrir íþróttamiðstöðina á Borg
08.04.2021

Notendakönnun fyrir íþróttamiðstöðina á Borg

Notendakönnun fyrir íþróttamiðstöðina á Borg
Allir 70 ára og eldri – mæta í bólusetningu
08.04.2021

Allir 70 ára og eldri – mæta í bólusetningu

Skjólstæðingar heilsugæslustöðva Selfoss, Hveragerðis, Þorlákshafnar og Laugarás vinsamlega athugið! Þeir sem ekki hafa fengið boð í bólusetningu gegn Covid -19 eða misstu af boðaðri bólusetningu og eru 70 ára eða eldri, er boðið að koma í bólusetningu laugardaginn 10. apríl n.k. milli kl. 16:30-17:00 í Vallaskóla á Selfossi. Verið er að klára að bólusetja alla sem eru 70 ára og eldri sem tilheyra þessum heilsugæslum. Munið grímurnar.
Vatnsveita Grímsnes- og Grafningshrepps
08.04.2021

Vatnsveita Grímsnes- og Grafningshrepps

Vatnsveita Grímsnes- og Grafningshrepps
Fundarboð 502. fundar sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps
05.04.2021

Fundarboð 502. fundar sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps

502. fundur sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu Borg, miðvikudaginn 7. apríl 2021, kl. 13.00 e.h.
Enginn páskamokstur
29.03.2021

Enginn páskamokstur

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps vill vekja athygli ykkar á eftirfarandi bókun sem gerð var á sveitarstjórnarfundi 2. desember 2020: c) Fundargerð 21. fundar samgöngunefndar, 25. nóvember 2020. Mál nr. 1, 2 og 3 þarfnast staðfestingar sveitarstjórnar. Lögð fram 21. fundargerð samgöngunefndar, dagsett 25. nóvember 2020. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar. Mál nr. 1: Styrkir til veghalds í frístundahúsabyggðum. Farið var yfir fyrirkomulag vegstyrkja til frístundahúsabyggða og rætt um nýja útfærslu á þeim. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að fyrirkomulaginu verði breytt samkvæmt fylgiskjali nr. 1. Helstu breytingarnar sem nýja fyrirkomulagið felur í sér eru þær að í stað fyrirfram styrkveitinga vegna viðhalds á vegum verða styrkirnir veittir til veghalds í víðari skilning en áður hefur verið gert, ásamt því að styrkir verða veittir vegna framkvæmda sem þegar hafa átt sér stað. Lagt er til að sveitarfélagið hætti að sinna snjómokstri í frístundahúsabyggðum um páska líkt og gert hefur verið, og snjómokstur verði þess í stað styrkhæfur sem hluti af veghaldi. Þá verði gerð flóttaleiða einnig styrkhæf og falli undir sömu styrkveitingar, og sérstakar styrkveitingar vegna gerðar flóttaleiða því felldar út. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að reglurnar taki gildi frá og með áramótum, og að gert verði ráð fyrir 3.500.000 kr. í fjárhagsáætlun ársins 2021 í styrki til veghalds. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi styrkfyrirkomulag og styrkfjárhæð. Hér má sjá nánar um styrki til veghalds í frístundabyggðum ásamt rafrænu umsóknareyðublaði. https://www.gogg.is/is/stjornsysla/styrkir/vegstyrkir-fyrir-sumahusafelog Sveitarfélagið mun því ekki sjá um páskamokstur héðan í frá en stjórnir frístundahúsafélaga geta óskað eftir snjómokstri hjá verktökum og sótt svo um styrk sbr. textann hér fyrir ofan. Styrkurinn hefur verið hækkaður frá því sem var og mun umsókn um styrk fyrir snjómokstri því ekki hafa áhrif á úthlutun frístundahúsafélaga sem sækja einnig um styrk fyrir uppbyggingu vega. Á heimasíðu sveitarfélagsins www.gogg.is neðarlega á upphafssíðunni, má finna lista yfir nokkra verktaka sem sinna snjómokstri undir flokknum jarðvinnuverktakar.
Getum við bætt efni síðunnar?